Beint á leiđarkerfi vefsins

Greinar

28.10.2011

Reynslan af notkun persónuleikamats

Um árabil hefur Hagvangur verið dreifingaraðili á Íslandi fyrir persónuleikamat sem hannað er af Hogan Assessment Systems í Bandaríkjunum. Það er því etv. ekki úr vegi að meta hver reynsla Hagvangs er af notkun þess og spyrja sig hvort notkun persónuleikamats hafi ekki aukið gæði ráðninga.

28.10.2011

Vinnustađagreining Hagvangs

Hagvangi hefur borist fjöldi fyrirspurna frá smærri fyrirtækjum og stofnunum sem vilja einfalda, hnitmiðaða og hagkvæma leið til að mæla starfsánægju og tengda þætti. Til að bregðast við þessari þörf hefur Hagvangur hannað mjög aðgengilega vinnustaðagreiningu sem byggir á traustum kenningum þar sem framsetning niðurstaðna er mjög einföld og auðskilin. Könnunin er rafræn, örugg og hægt er að klæðskerasauma hana að þörfum hvers og eins.

28.10.2011

Viltu ráđa tíu sinnum hćfara fólk?

Þegar niðursveifla verður í atvinnulífi eykst kostnaðarvitund stjórnenda og þeir velta fyrir sér hvort lækka megi kostnað við ráðningar. Spurningin sem þeir velta fyrir sér er ef til vill hvort það borgi sig að annast ráðningarnar alfarið með innanhússfólki eða hvort hagstæðara sé að leita til ráðningarstofu.

27.10.2011

Ađ draga úr neikvćđum áhrifum uppsagna

Að undanförnu hafa fjölmörg fyrirtæki þurft að grípa til þess ráðs að segja upp starfsfólki og er sú staða alltaf erfið. Fyrirtækin þurfa að sjá á eftir góðu fólki og þeir sem fyrir uppsögninni verða, þurfa að glíma við það áfall sem uppsögnin hefur í för með sér samhliða því að leita að nýju starfi, sem mörgum getur reynst stórt skref að taka. Á slíkum tímum er mikilvægt að huga vel að þeim einstaklingum sem sagt er upp störfum og ætti það að vera forgangsmál hjá stjórnendum.

14.10.2011

Stjórnendur ţurfa líka ţjálfun

Stjórnandinn má ekki láta eigin símenntun sitja á hakanum, að sögn Katrínar S. Ólafsdóttur framkvæmdastjóra Hagvangs. „Í dag þurfa stjórnendur fyrirtækja að vera svo mörgum vopnum búnir enda verðu viðskipta- og rekstrarumhverfið æ flóknara og sjaldan eða aldrei reynt jafnmikið á að stjórnandinn sé fær og með breiða þekkingu," segir Katrín

11.4.2011

Persónuleikapróf í ráđningum

Ráðningar hafa verið í brennidepli í fjölmiðlum undanfarna daga og eru skoðanir skiptar um hvað teljist til faglegra ráðninga. Lengi vel þótti óþarfi að eyða miklum tíma í ráðningar. Viðtölin voru þá stutt og sumir þóttust sjá strax í dyrunum hvort viðkomandi væri hæfur eða ekki. Í dag hefur skilningur á mikilvægi þess að vanda til verka aukist enda eru misheppnaðar ráðningar kostnaðarsamar.

11.4.2011

Minni starfsmannavelta og bćtt frammistađa

Persónuleikapróf meta eiginleika í fari fólks sem hafa áhrif á hvernig það ber sig að við vinnu og í samskiptum. Þessa eiginleika getur reynst erfitt að meta í umsóknum, viðtölum eða umsögnum og því veita prófin gagnlegar viðbótarupplýsingar í ráðningarferlinu.

11.4.2011

Ađ velja úr stórum hópi umsćkjenda

Margir atvinnurekendur standa frammi fyrir þeirri áskorun að þurfa að velja efnilegasta starfskraftinn úr stórum hópi umsækjenda. Í dag er algengt að fjöldi umsókna um hvert starf sé á bilinu 100 til 300. Leitin að þeim einstaklingi sem er líklegastur til að standa sig vel getur þá verið eins og að leita að nál í heystakki og kostar stjórnendur verulegan tíma og fyrirhöfn.

11.4.2011

Öryggismálin í fyrirrúmi

Ein af afurðum Hogan Assessment Systems er öryggisskýrslan en hún er ætluð til notkunar í atvinnugreinum þar sem öryggis- og gæðamál gegna veigamiklu hlutverki. Í slíku umhverfi er þess krafist að starfsfólk beri virðingu fyrir reglum og fyrirmælum, sýni öguð vinnubrögð, hafi jafnaðargeð, forðist að taka áhættu og geti einbeitt sér við fyrirliggjandi verk.

4.11.2008

Persónuleg ráđgjöf í kjölfar uppsagna

Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum á undanförnum vikum og mánuðum hafa íslensk fyrirtæki í auknum mæli neyðst til þess að segja upp starfsmönnum til að bregðast við vaxandi samdrætti í þjóðfélaginu. Á slíkum tímum er mikilvægt að huga vel að þeim einstaklingum sem sagt er upp störfum og ætti það að vera forgangsmál hjá stjórnendum.

10.10.2008

Erfiđar tímar framundan á vinnumarkađi

Atburðir í íslensku fjármálalífi undanfarna daga munu hafa afleiðingar fyrir fjölda fyrirtækja og starfsmenn þeirra.

23.9.2008

Fleiri nýta sér ráđningarţjónustu

Sífellt fleiri nýta sér ráðningarþjónustu

11.9.2008

Frá gólfi, upp í rjáfur!

Þýska fyrirtækið Bauhaus, sem er ein af stærstu verslunarkeðjum á byggingasviði í Evrópu, ætlar nú að hasla völl á Íslandi.  Verslunin á Íslandi er undir stjórn danska Bauhaus og þeir völdu Hagvang sem samstarfsaðila til að finna starfsfólk, alveg frá almennu starfsfólki til forstjóra. 

5.6.2008

Ţrengingar á vinnumarkađi verđa í haust

Þrengingar á vinnumarkaði hafa mikið verið í umræðunni síðustu mánuði og má búast við að þær komi enn betur í ljós nú á haustmánuðum.

19.3.2008

Dragbítar

Nýlega mátti lesa í dagblöðum viðtal við formann FKA, Margréti Kristmannsdóttur þar sem hún dregur ráðningarfyrirtæki til ábyrgðar hvað varðar ójöfn laun kynjanna og kallar þau ,,dragbíta á launajafnrétti". Jafnframt dregur hún þá ályktun að konur,  sem eru í meirihluta starfsmanna hjá slíkum fyrirtækjum, bjóði konum lægri laun en körlum við ráðningar.   


Mynd