Greinar
11.9.2008
Frá gólfi, upp í rjáfur!
Þýska fyrirtækið Bauhaus, sem er ein af stærstu verslunarkeðjum á byggingasviði í Evrópu, ætlar nú að hasla sér völl á Íslandi. Bauhaus rekur 190 verslanir í 12 Evrópulöndum sem allar vinna eftir "allt undir einu þaki" hugmyndafræðinni og bjóða því upp á gríðarlegt vöruúrval. Verslunin á Íslandi er undir stjórn danska Bauhaus og þeir völdu Hagvang sem samstarfsaðila til að finna starfsfólk, alveg frá almennu starfsfólki til forstjóra. Fyrirsögnin "frá gólfi, upp í rjáfur" á því einkar vel við það verkefni sem Hagvangur fæst við þessar vikurnar fyrir Bauhaus.
Í vor og sumar voru ráðnir stjórnendur Bauhaus á Íslandi og hafa þeir ásamt starfsmönnum Hagvangs staðið í ströngu að undanförnu við að ráða í störf millistjórnenda. Því verkefni er nú að ljúka og við tekur að ráða söluráðgjafa, fólk í þjónustudeild, lagermenn, starfsfólk á kassa og aðstoðarfólk svo það helsta sé nefnt.
Verkefnið er mikið að umfangi því starfsmenn stórverslunar Bauhaus verða ekki færri en 160 þegar verslunin opnar. Það mæðir því töluvert á starfsmönnum Hagvangs við að taka á móti umsóknum og ræða við áhugasama því nú þegar hafa um 1200 umsækjendur sótt um störf sem auglýst hafa verið til þessa og á þó töluvert eftir að auglýsa. Um leið er verkefnið ánægjulegt því vel hefur tekist til með ráðningar og öflugur hópur stjórnenda verið ráðinn.
Á dögunum var bryddað upp á þeirri nýbreytni að halda kynningu eða "opið hús" þegar auglýst var eftir söluráðgjöfum og fólki í þjónustudeild. Þessi nýlunda við ráðningar mæltist vel fyrir og mættu 60 manns á Grand Hótel þar sem kynningin var haldin af stjórnendum Bauhaus á Íslandi í samstarfi við Hagvang. Eftir stuttan inngang og kynningu á komandi starfsemi Bauhaus á Íslandi ræddu starfsmenn Bauhaus og Hagvangs við gesti á óformlegum nótum og veittu upplýsingar um það sem framundan er hjá Bauhaus.

