Greinar
23.9.2008
Fleiri nýta sér ráðningarþjónustu
Þá má heldur ekki gleyma að þú hefur meiri möguleika á að fá fleiri tækifæri en færri til að skoða ef þessi leið er valin. Kostirnir eru því margir. Umsækjendur eru boðaðir í viðtal þar sem þeir kynna sig og farið er yfir þeirra faglegu styrkleika og reynslu.Síðan er það háð framboði og eftirspurn m.v. þeirra óskir og getu hvernig gengur að ráða viðkomandi í starf.
Aðspurð segir Katrín; ,,Við auglýsum aðeins um 10% af lausum störfum. Því getur verið erfitt fyrir umsækjandann að átta sig á því hvaða laus störf eru í boði. Ástæðan fyrir þessu er ósk atvinnurekandans um að fundin sé lausn án þess að starfið skuli auglýst. Þetta sparar fyrirtækjunum oft bæði tíma og peninga. Þess vegna er mikilvægt fyrir þann sem er að hugsa sér til hreyfings og vill fylgjast með að hafa samband og óska eftir viðtali við ráðgjafa.
Hún segir að þrátt fyrir umfjöllun fjölmiðla um erfiða stöðu á vinnumarkaðinum sé enn frekar líflegt og talsverð eftirspurn eftir starfsfólki. Ákveðnir geirar hafa átt í meiri erfiðleikum en aðrir og þar hefur mest borið á uppsögnum. Önnur fyrirtæki haldi sínu striki og alltaf sé jafnt og þétt verið að leita að fólki.
,,Hún segir að fæstir þeirra rúmlega fjögur þúsund umsækjenda sem skráðir eru hjá Hagvangi séu án atvinnu. Flestir eru að leita að starfsþróunartækifærum og tilbreytingu."
Greinin birtist í Morgunblaðinu 21. september 2008

