Greinar
4.11.2008
Persónuleg ráðgjöf í kjölfar uppsagna
Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum á undanförnum vikum og mánuðum hafa íslensk fyrirtæki í auknum mæli neyðst til þess að segja upp starfsmönnum til að bregðast við vaxandi samdrætti í þjóðfélaginu. Á slíkum tímum er mikilvægt að huga vel að þeim einstaklingum sem sagt er upp störfum og ætti það að vera forgangsmál hjá stjórnendum. Stjórnendur ættu að tryggja, eins og þeim er frekast unnt, að starfsmenn séu kvaddir með góðum hætti og þeim veitt aðstoð við að finna ný tækifæri á vinnumarkaði. Hagvangur hefur aðstoðað fyrirtæki í hartnær 20 ár sem hafa staðið frammi fyrir þessum vanda og að undanförnu hafa fjölmörg fyrirtæki leitað til okkar og er skemmst að nefna samstarf Hagvangs og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) sem felst í því að félagsmenn samtakanna geta nýtt sér aðstoð ráðgjafa Hagvangs.
Að draga úr neikvæðum áhrifum uppsagna
Það er alltaf erfitt þegar grípa þarf til þess ráðs að segja upp starfsfólki. Fyrirtækin þurfa að sjá á eftir góðu fólki og þeir sem fyrir uppsögninni verða, þurfa að glíma við það áfall sem uppsögnin hefur í för með sér samhliða því að leita að nýju starfi, sem mörgum getur reynst stórt skref að taka. Hagvangur veitir ekki einungis þeim sem fyrir uppsögnunum verða ráðgjöf heldur einnig þeim stjórnendum sem þurfa að standa að þeim. Stjórnendur geta leitað til ráðgjafa Hagvangs um leiðbeiningar um hvernig best sé að standa að ýmsum atriðum er varða uppsagnaferlið.
Uppsögn er ávallt áfall fyrir starfsmann. Viðkomandi getur upplifað mikla höfnun, reiði gagnvart fyrirtækinu eða stjórnendum þess, hræðslu um hvað koma skal auk þess sem margir upplifa tíðindi sem þessi sem mikla skömm. Algengt er að menn líti svo á að þeir séu síðri starfsmenn en þeir sem ekki fengu uppsögn. Nú þegar mjög stórum hópi er sagt upp í kjölfar efnahagsaðstæðna þá virðast starfsmenn síður taka uppsögninni persónulega, en þó má alltaf gera ráð fyrir að einhverjir efist um eigin ágæti, og eru slíkar tilfinningar og vangaveltur mjög eðlilegar. Sama hversu vel er staðið að uppsögnum þá er aldrei hægt að útiloka þessar tilfinningar en það má sannarlega draga úr áhrifum þeirra. Geri stjórnendur ekkert til að draga úr áfallinu er hætta á að starfsmenn yfirgefi fyrirtækið með neikvæðar tilfinningar til þess og beri jafnvel út óhróður um fyrirtækið. Slíkri auglýsingu hafa fæstir efni á. Eins draga stjórnendur verulega úr möguleikum sínum á því að fá hæfa starfsmenn aftur til starfa síðar þegar betur árar.
Einstaklingsmiðuð ráðgjöf
Ein besta leiðin til að komast yfir áfall sem fylgir uppsögn er að finna starf við hæfi sem fyrst. Það ætti því að vera stjórnendum kappsmál að aðstoða starfsmenn við þá leit. Góð leið til þess er að bjóða starfsfólki upp á ráðgjöf hjá utanaðkomandi og hlutlausum fagaðila. Hagvangur býður upp á einstaklingsráðgjöf þar sem viðkomandi er veitt aðstoð við leit að nýju starfi og móta þar með nýjan starfsferil. Starfsmaðurinn kemur og hittir ráðgjafa sem aðstoðar við gerð ferilskrár og kynningarbréfs, en það er þó aðeins byrjunin á ferlinu sem hefur það markmið að finna nýtt starf. Starfsmaðurinn hlýtur þjálfun í viðtölum, fær ráð um æskilega hegðun í viðtölum og hvað beri að varast. Á þessum hlutlausa vettvangi skapast líka svigrúm til að ræða málin almenn t.d. líðan í kjölfar uppsagnar.
Ráðgjöf fer fyrst fram í formi viðtals og umræðna en í kjölfarið er umsókn viðkomandi fylgt vel eftir. Starfsmaðurinn hefur ávallt aðgang að ráðgjöfum Hagvangs ef spurningar vakna eða frekari aðstoðar er þörf í atvinnuleitinni. Ráðgjafar Hagvangs hafa samband við starfsmanninn að nokkrum tíma liðnum til fylgja málum eftir og veita frekari aðstoð ef þess er þörf. Viðkomandi býðst einnig að taka stutt próf sem greinir gildi og viðhorf starfsmannsins til vinnu og hjálpar honum að átta sig á hvers kyns starfsumhverfi og vinnumenning hentar honum.
Þeir einstaklingar sem þegar hafa notið góðs af ráðgjöf sem þessari hjá Hagvangi hafa margir litið á uppsögnina sem upphaf nýrra tækifæra og horfa bjartsýnir fram á veginn.
Lífið eftir uppsögn
Það verða miklar breytingar á daglegu lífi flestra sem missa vinnuna og mikilvægt er að fólk haldi dampi, setji sér verkefni fyrir næstu daga og haldi ákveðinni dagskrá. Flest erum við vön því að vakna alltaf á sama tíma, mæta til vinnu, sinna ákveðnum verkefnum, fara í hádegismat á sama tíma osfrv. Þegar hin hefðbundna rútína er svo ekki lengur til staðar þá skapast hætta á að fólk hafi ekkert fyrir stafni. Sé það langvarandi ástand eru auknar líkur á fólk finni til depurðar og jafnvel tilgangsleysis. Því er mikilvægt að setja sér sjálfur dagskrá fyrir komandi daga, t.d. fara út í göngutúr á ákveðnum tíma, taka til í skápunum, heimsækja vini og að sjálfsögðu að huga að atvinnuleitinni, en hún getur tekið dágóðan tíma.
Á tímum sem þessum er nokkuð stór hópur fólks sem er í sömu aðstöðu og hefur mörgum reynst gott að hitta reglulega þá sem standa í sömu sporum. Það getur veitt fólki ómældan stuðning að ræða málin við þá sem eru að upplifa sambærilega hluti, afla upplýsinga um hvað hefur reynst öðrum gott í þessu ferli, hvar hægt sé að leita aðstoðar, atvinnu osfrv. Margir af þeim sem notið hafa ráðgjafar hjá Hagvangi eru duglegir að halda hópinn með þeim sem eru í sömu sporum, flest allir hafa verið mjög ánægðir með þann félagsskap og þykir gott að vita til þess að þeir standa ekki í þessu einir.
Þeir sem eftir sitja
Uppsögnum fylgja óvissa og óöryggi meðal þeirra starfsmanna sem eftir sitja. Það getur leitt til hnignunar vinnuandans og dregið úr framleiðni auk þess sem slæmt umtal um fyrirtækið getur breiðist út. Þeir sem eftir sitja geta jafnvel misst trú á framtíð fyrirtækisins og fara að leita atvinnutækifæra annars staðar. Mikilvægt er því að vel sé hlúð að þeim sem eftir sitja og viti starfsmenn að stjórnendur geri það sem í þeirra valdi stendur til að auðvelda fráfarandi starfsfólki leitina að nýju tækifæri og sýni með þeim hætti að þeim sé umhugað um framtíð þeirra má draga verulega úr þeim neikvæðu áhrifum sem uppsagnir hafa á starfsmenn. Í mörgum tilvikum þurfa stjórnendur að grípa til aukinnar ráðgjafar fyrir þá starfsmenn sem eftir sitja, til að bæta andann, framleiðni og öryggi fólks. Mikilvægt er líka að öll upplýsingagjöf sé virk og rétt. Séu ekki fleiri uppsagnir fyrirhugaðar er mikilvægt að fullvissa fólk um að svo sé, ekki aðeins til að útrýma óvissu svo fólki líði betur heldur einnig til þess að draga úr líkum á því að fyrirtækið missi fleiri hæfa einstaklinga frá sér.
Höfundar:
Inga Steinunn Arnardóttir og Elísabet Sverrisdóttir, ráðgjafar hjá Hagvangi.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 2. nóvember 2008.

