Hogan Personality Inventory (HPI)
"The Bright Side of Personality"
Kvarði sem mælir persónueinkenni sem eru nauðsynleg til að ná árangri í starfi, samskiptum og menntun.
Kvarðarnir
Hogan Personality Inventory (HPI) samanstendur af sjö meginkvörðum, einum réttmætiskvarða og sex samsettum vinnukvörðum. Meginkvarðarnir sjö eru; Aðlögun, metnaður, félagslyndi, samskiptanæmi, samviskusemi, forvitni og námsnálgun. Vinnukvarðarnir sex eru þjónustulund, álagsþol, áreiðanleiki, Clerical potential, söluhæfni og stjórnunarhæfni.
Notkun
- Starfsmannaöflun og starfsmannaval – kvarðinn er notaður sem hluti af valferli. HPI kemur auga á umsækjendur sem hafa þau persónuleikaeinkenni sem nauðsynleg eru til að sinna því starfi sem um ræðir.
- Leiðtogaþjálfun/mat– niðurstöðurnar teknar saman í ítarlegri skýrslu, Leadership Forecast Potential Report. Sé skýrslan notuð ásamt Leadership Challenge Report og Values Report fást yfirgripsmiklar upplýsingar um styrkleika og þjálfunarþörf stjórnanda.
Kostir og ávinningur
- Hannað til að spá fyrir um árangur í starfi.
- Gerir kleift að meta áhrif stjórnanda á frammistöðu starfsmanna sinna og á fyrirtækismenningu.
- Frábært tæki til að byggja upp og skipuleggja þjálfun.
- Byggt á fimm þátta líkani persónuleika (five factor model of personality).

