Beint á leiðarkerfi vefsins

Hogan Development Survey, HDS

Bráður

Tekur til þess að vera einum of ákafur gagnvart fólki eða verkefnum, og verða svo fyrir vonbrigðum með þau. Afleiðing: virðist skorta þrautseigju

Efagjarn

Tekur til þess að búa yfir félagslegu innsæi en vera kaldhæðinn og of viðkvæmur fyrir gagnrýni. Afleiðing: virðist skorta traust

Varkár

Tekur til þess að hafa of miklar áhyggjur af að verða fyrir gagnrýni. Afleiðing: virðist mótfallinn breytingum og tregur til að taka áhættu.

Fálátur

Tekur til þess að skorta áhuga á eða meðvitund um tilfinningar annarra. Afleiðing: virðist eiga erfitt með samskipti. Hægfara

Tekur til þess að vera sjálfstæður, hunsa óskir annarra og fyrtast við ef fólk stendur fast á sínu. Afleiðing: virðist þrjóskur, frestunargjarn og ósamvinnuþýður.

Frakkur

Tekur til þess að hafa einum of mikið álit á eigin hæfni og mikilvægi. Afleiðing: virðist ekki geta viðurkennt mistök eða lært af reynslunni.

Glannalegur

Tekur til þess að vera heillandi, taka áhættu og sækjast eftir spennu. Afleiðing: virðist eiga erfitt með að standa við skuldbindingar og læra af reynslunni

Litríkur

Tekur til þess að vera leikrænn, aðlaðandi og sækjast eftir athygli. Afleiðing: virðist upptekinn af að láta taka eftir sér og getur skort langvarandi einbeitingu

Hugmyndaríkur

Tekur til þess að hugsa og starfa á áhugaverðan og jafnvel sérvitran hátt. Afleiðing: virðist skapandi en skortir hugsanlega á dómgreind.

Iðinn

Tekur til þess að vera samviskusamur, haldinn fullkomnunaráráttu og erfitt að gera til hæfis. Afleiðing: á það til að taka fram fyrir hendurnar á starfsmönnum

Skyldurækinn

Tekur til þess að vilja þóknast öðrum og vera tregur til að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Afleiðing: er gjarnan vingjarnlegur og geðfelldur, en tregur til að styðja undirmenn.


Mynd