Hvað mælir MVPI?
Viðurkenning
Löngun eftir því að verða þekktur, sýnilegur og frægur sem leiðir til lífsstíls sem miðast að því að eftir manni sé tekið, ásamt draumum um frægð og mikil afrek, hvort sem þeir draumar rætast eða ekki.
Vald
Löngun til að njóta velgengni, láta hlutina gerast, skipta máli og ná betri árangri en keppinautar
Nautnahyggja
Leit að skemmtun, spennu, ánægju og lífsstíll sem snýst um mat, drykk og skemmtanir.
Hjálpsemi
Löngun til að hjálpa öðrum, áhyggjur af velferð þeirra sem minna mega sín í lífinu og lífsstíll sem snýst um þjónustu í þágu almennings og mannúðarmál
Félagsleg tengsl
Þörf fyrir og ánægja af tíðum og margvíslegum félagslegum tengslum og lífsstíll sem snýst um félagsleg samskipti
Hefðir
Trú á og tryggð við gamaldags dyggðir eins og fjölskyldu, kirkju, ráðdeild, vinnusemi, viðeigandi félagslega hegðun og lífsstíll sem endurspeglar þessi gildi.
Öryggi
Þörf fyrir fyrirsjáanleika, skipulag og leitað leiða til að forðast áhættu og óvissu – sérstaklega á atvinnusviðinu – og lífsstíll sem snýst um að draga sem mest úr villum og mistökum.
Viðskipti
Áhugi á góðum tekjum, auknum hagnaði, nýjum viðskiptamöguleikum og lífsstíll sem snýst um fjárfestingar og viðskipta- og fjárhagsáætlanir.
Fagurfræði
Þörf fyrir sjálfstjáningu, áhersla á gæði og fágun, áhugi á útliti hluta áferð þeirra og hljómi, auk áherslu á ásýnd
Vísindi
Áhugi á vísindum, tækniskilningur, ákvarðanir sem byggjast á gögnum frekar en innsæi og tíma eytt í að læra um virkni hluta.

