Beint á leiðarkerfi vefsins

Motives,Values, Preferences Inventory

"The Inside of Personality"

Fyrirtæki sem hafa náð miklum árangri nefna iðulega fyrirtækismenningu sína sem ástæðuna fyrir velgengni sinni en fyrirtækismenning er sögð endurspegla gildi þeirra sem þar stjórna. Þetta er grundvöllurinn að hönnun Motives, Values, Preferences Inventory (MVPI).

MVPI mælir gildi einstaklinga og er öflugt tæki til að bera saman hversu vel þeir "passa við" menningu fyrirtækis, í erlendum rannsóknum er það kallað "person-organization fit".  Kvarðinn byggir meðal annars á rannsóknum á starfshvata og gefur vísbendingu um hvað er líklegt til að hvetja viðkomandi áfram í starfi.

Skalarnir 

Motives, Values, Preferences kvarðinn (MVPI) mælir 10 eftirfarandi víddir í þeim tilgangi að finna grundvallar gildi; Viðurkenning, Vald, Nautnahyggja, Hjálpsemi, Félagsleg tengsl, Hefðir, Öryggi, Viðskipti, Fagurfræði og Vísindi

Kvarðinn mælir því frekar hvað fólk vill gera eða langar til að gera frekar en hvað það er líklegt til að gera. 

Notkun

  • Til að meta person–environment fit – þ.e hversu vel starfsmaður fellur að þeirri fyrirtækismenningu sem er ríkjandi í þínu fyrirtæki.
  • Greining og þróun liðsheilda - til að meta hversu vel starfsmenn eiga saman miðað við hvað hvetur þá áfram, þetta er mjög mikilvægt því útfrá hagsmunum fyrirtækisins er  það  nauðsynlegt að allir séu að stefna að sama marki.
  • Skipulag starfsferils - aðstoðar fólk við að skipuleggja starfsferil sinn útfrá áhugasviðum sínum og gildum. Fólk er líklegra til að vera ánægt í starfi í fyrirtæki sem hefur gildi sem líkjast þeirra eigin.

Kostir

  • Kemur auga á grundvallargildi með sérstakri áherslu á vinnuumhverfi.
  • Öflugt tæki við greiningu og uppbyggingu liðsheilda 
  • Metur hversu vel gildi einstaklings eiga við menningu fyrirtækisins
  • Öflugt hjálpartæki til notkunar við ákvarðanir tengdar starfsferli 
  • Kvarðinn er byggður á rannsóknum síðustu 80 ára á starfshvata (motivation)

 


Mynd