Beint á leiðarkerfi vefsins

Hönnun starfsmannavalskerfa

Við getum aðstoðað þig við að hanna og innleiða vandað og árangursríkt ráðningaferli á öll svið fyrirtækisins. 

Við teljum að það sé hagkvæmara og vænlegra til árangurs að verja frekar tíma og fjármunum í upphafi í árangursríkt ferli starfsmannaöflunar og starfsmannavals en í það að reyna að breyta eða segja upp starfsmönnum vegna slæmrar frammistöðu.

Áður en þú tekur ákvörðun um hvort þú ræður starfsmann er gott að vita hvort hann:

  • leggur mikið á sig til að ná árangri
  • vinnur vel í hópi
  • á auðvelt með að byggja upp góð tengsl við viðskiptavini
  • fylgir verkefnum eftir
  • er hugmyndaríkur
  • leggur sig fram við að læra nýjungar í faginu

Við getum hjálpað þér að finna þær upplýsingar sem þú þarft til að taka vel upplýstar ákvarðanir um ráðningu.


Mynd