Lýsing á öryggisskýrslu Hogan
Viltu auka öryggisvitund meðal þinna starfsmanna?
Öryggisskýrsla Hogan veitir dýrmætar upplýsingar um persónueiginleika sem hafa áhrif á hvernig starfsmaður ber sig að í öryggis- og gæðamálum.
Í ráðningum
Rannsóknir síðustu 30 ára hafa sýnt að ákveðnum einstaklingum hættir frekar en öðrum til að gera mistök sem geta verið fyrirtækjum dýrkeypt. Öryggisskýrsla Hogan er sérstaklega hönnuð til að koma auga á þessa einstaklinga áður en af ráðningu verður.
Ávinningur af því að nota öryggisskýrsluna í ráðningum
- Hentugt til að velja úr stórum hópi umsækjenda, sparar bæði tíma og peninga
- Betur hægt að treysta starfsfólki til að fara eftir reglum þegar eftirlit er minna (t.d. á næturvöktum)
- Fækkun frávika og mistaka
- Bætir ímynd fyrirtækisins
Í starfsþróun/þjálfun
Öryggisskýrslan gagnast einnig til þess að hjálpa starfsmönnum að átta sig á veikleikum sínum og styrkleikum og hvernig þeir tengjast hegðun þeirra í öryggsimálum.
Ávinningur af notkun skýrslunnar í starfsþróun:
- fækkun slysa, tjóna og annarra óhappa
- aukinnar öryggisvitundar meðal starfsmanna og stjórnenda
- að starfsfólk tekur aukna ábyrgð á eigin hegðun
Atvinnugreinar
Skýrslan er ætluð til notkunar í ýmsum atvinnugreinum, m.a. í:
- Orkuiðnaði og hitaveitu
- Byggingariðnaði
- Ríkisreknum stofnunum
- Landbúnaði
- Framleiðslufyrirtækjum
- Fólks- og vöruflutningum
- Verslun & þjónustu

