Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnendateymi

 

Greining á virkni og styrk stjórnendateymis

Standa menn saman þegar á reynir?

Samspil æðstu stjórnenda getur ráðið úrslitum í harðri samkeppni um viðskiptavini, ekki síst á erfiðum tímum. Hagvangur býður upp á nákvæmar greiningar með prófum frá Hogan Assesments og ráðgjöf er sniðin að þörfum hvers stjórnanda í kjölfar trúnaðarkynningar á niðurstöðum.

Ávinningur

  • Markvissari samskipti milli stjórnenda
  • Aukin samheldni stjórnendateymisins
  • Markviss vinna við eflingu teymisins til framtíðar

Greiningin byggir á neðangreindum skrefum

  • Hver stjórnandi tekur 3 vönduð próf frá Hogan Assesments
  • Þessu til viðbótar kemur sérstök markþjálfunar skýrsla þar sem hver og einn fær ráðleggingar um svæði sem vinna þarf með
  • Ráðgjafi frá Hagvangi fer yfir niðurstöður hvers og eins og ríkir fullkominn trúnaður um niðurstöður einstaklinga.
  • Heildarskýrsla er unnin þar sem stjórnendateyminu er lýst og sérstaklega bent á eiginleika og aðstæður þar sem veikleikar gætu reynst sérlega varasamir.
  • Hver stjórnandi getur valið að deila niðurstöðum prófanna á hópfundi sem haldinn er með stjórnendateyminu og þannig öðlast teymið nýja og sameiginlega sýn á stöðu sína.

Mynd