Beint á leiðarkerfi vefsins

Teymis vinnustofur

Til að teymi eða hópur nái árangri er gott að gera sér grein fyrir styrkleikum þeirra einstaklinga sem hann mynda og teymisins sem heildar. Sú menning sem er ráðandi innan þess getur líka skipt sköpum um hvernig teymið leysir verkefni og hvort það nær árangri.

Þó Teymis Vinnustofur Hagvangs séu vissulega skemmtilegar er markmið þeirra fyrst og fremst að vera gagnlegar og skila varanlegum og mælanlegum árangri.

Í Vinnustofum Hagvangs er notast við prófin HPI, HDS og MVPI frá Hogan Assessment Systems til að greina styrkleika og veikleika teymisins og þeirra einstaklinga sem það mynda. Allir þátttakendur frá ítarlegar skýrslur og þjálfunarbók.  

Hægt er að líta á tilgang vinnustofunnar út frá tveimur sjónarhornum: 

Út frá starfsmanninum:

  1. Auka þekkingu á eigin styrkleikum og tækifærum til framfara. 
  2. Gera sér grein fyrir hvernig aðrir túlka hegðun hans og hvernig hann getur breytt því
  3. Hagnýt þekking á matstækjum og hvernig á að nota þau til að nýta styrkleika og bæta veikleika.

Út frá teyminu:

  1. Teymið fær hugmynd styrkleika þess og veikleika sem heildar.
  2. Hvað er lýsandi fyrir vinnubrögð teymisins?
  3. Hvaða tækifæri eru til að styrkja og bæta frammistöðu þess og ná markmiðum, hvað virkar hvetjandi á teymið? 
  4. Hvernig er "kúlturinn" í teyminu?

Mynd