Beint á leiðarkerfi vefsins

Störf í boði

13.1.2012

Sölumaður sjávarafurða

Fyrirtæki í sölu og framleiðslu sjávarafurða leitar að öflugum sölumanni sjávarafurða.

Starfið felur í  sér sölu sjávarafurða á erlendum mörkuðum.  Sölumanni er ætlað að greina markaði fyrir vörur fyrirtækisins og markaðssetja þær á völdum mörkuðum, gera sölusamninga og sjá um samskipti við kaupendur og skipuleggja flutning á áfangastað.

 Hæfniskröfur:

  • Menntun og /eða reynsla sem nýtist  í starfi.
  • Áhugi og þekking á sjávarútvegi.
  • Tungumálakunnátta.
  • Nákvæmni, samviskusemi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð almenn tölvukunnátta, kunnátta  á Excel og Navision.
  • Dugnaður, lipurð í samskiptum og jákvætt hugarfar.

Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Umsóknarfresturinn er liðinn.

Mynd