Beint á leiðarkerfi vefsins

Störf í boði

13.1.2012

Skjalavinnsla - útflutningur

Fyrirtæki í sölu og framleiðslu sjávarafurða leitar að öflugum starfsmanni í skjalavinnslu-útflutning.

Starfið felur í sér gerð útflutningsskjala svo sem sölureikninga, vottorða, flutningsfyrirmæla  og  tollafgreiðslu sendinga.  Auk annarra tilfallandi verkefna við símsvörun og bókhald.

 Hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtist  í starfi.
  • Reynsla af gerð útflutningsskjala.
  • Reynsla af skjalaábyrgðum.
  • Reynsla og þekking á bókhaldi.
  • Góð tölvukunnátta, einkum á Navision (WiseFish) og Excel.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku.
  • Dugnaður, lipurð í samskiptum og jákvætt hugarfar

Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.

Umsóknarfresturinn er liðinn.

Mynd