Beint á leiðarkerfi vefsins

Störf í boði

13.1.2012

Framkvæmdastjóri - Framtakssjóður Íslands

Framtakssjóður Íslands slhf (FSÍ) er samlagshlutafélag stofnað fyrir um tveimur árum og er í eigu 16 lífeyrissjóða, Landsbankans og VÍS. Markmið sjóðsins er að taka þátt í fjárhagslegri og rekstrarlegri endurreisn og uppbyggingu íslensks atvinnulífs. FSÍ hefur fjárfest í íslenskum fyrirtækjum í mörgum atvinnugreinum og náð góðum árangri. Markmið sjóðsins er að ná áfram vænlegri arðsemi á fjárframlög eigenda. Starfstími sjóðsins er tímabundinn og nú þegar hefur sjóðurinn fjárfest fyrir um 60% af um 54 milljörðum sem hann getur varið til fjárfestinga. Gera má ráð fyrir að fjárfestingum sjóðsins ljúki að mestu á næstu 1-2 árum og síðan snúist starfsemin um að gera verðmæti úr þeim félögum sem sjóðurinn hefur fjárfest í og selja eignirnar.

Leitað er eftir öflugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra FSÍ. Skilyrði er að viðkomandi eigi auðvelt með að greina viðskiptatækifæri og rekstur fyrirtækja og hafi hæfni til að greina framtíðarmöguleika þeirra og taki þátt í sölu fyrirtækjanna og skráningu á hlutabréfamarkað. 

Einnig er lykilatriði að viðkomandi búi yfir góðum samskiptahæfileikum og samningatækni.

 Helstu verkefni

  • Ábyrgð á fjárfestingum og sölu fyrirtækja
  • Taka þátt í mótun stefnu um fjárfestingar og sölu
  • Meta viðskiptatækifæri og greina samkeppnishæfni og framtíðarmöguleika þeirra
  • Undirbúa og leggja tillögur fyrir stjórn um fjárfestingar og sölu
  • Samningaviðræður um fjárfestingar og sölu
  • Samskipti við forsvarsmenn félaga í eigu sjóðsins
  • Þátttaka og frumkvæði í stefnumótun dóttur- og hlutdeildarfyrirtækja

 Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, á sviði viðskiptafræði, verkfræði, og/eða lögfræði eða tengdra fræðigreina
  • Umtalsverð reynsla af fjárfestingum og fyrirtækjarekstri
  • Kunnátta og hæfileiki til að greina styrkleika og veikleika í rekstri fyrirtækja og  meta framtíðarmöguleika þeirra
  • Þekking og reynsla á yfirtökum og sameiningu fyrirtækja
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Frjó og skapandi hugsun
  • Rík ábyrgðartilfinning

Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is eða sendist á netfangið thorir@hagvangur.is ásamt fylgigögnum merktar „Framkvæmdastjóri 9886“

Umsóknarfresturinn er liðinn.

Mynd