Störf í boði
20.1.2012
Verk- eða tæknifræðingur
Vaxandi fyrirtæki sem vinnur með jarðvarma erlendis óskar eftir að ráða verk- eða tæknifræðing til starfa. Skrifstofur fyrirtækisins eru í Reykjavík en starfinu geta fylgt ferðalög erlendis.
Meðal helstu verkefna eru:
- Aðstöð við Markaðsdeild við undirbúning kynningar og sölugagna
- Greining tæknigagna/upplýsinga frá viðskiptavinum
- Tilboðagerð
- Samskipti við viðskiptavini meðan á söluferli stendur (m.a. þáttaka í sölufundum erlendis með sölu og markaðsfólki)
- Almenn vinna við hönnunarverkefni og aðstoð til vörustjóra
Við leitum eftir verk- eða tæknifræðingi með amk. 5 ára starfsreynslu, viðkomandi þarf að hafa gott vald á helstu teikn og hönnunarforritum sem og gott vald á talaðri og skrifaðri ensku.
Umsóknarfresturinn er liðinn.

