Beint á leiðarkerfi vefsins

Störf í boði

23.1.2012

Snyrtilegur matráður - VAKI

Vaxandi alþjóðafyrirtæki auglýsir eftir aðstoðarmanneskju í 50% starf í eldhús og þrif.

VAKI er leiðandi fyrirtæki í þróun og markaðssetningu tæknibúnaðar fyrir fiskeldi. Nánast öll framleiðsla er seld á erlenda markaði í gengum umboðsaðila eða dótturfyrirtæki erlendis. Starfsmenn á Íslandi eru 20 talsins, 7 starfa hjá dótturfyrirtæki VAKA í Chile og 1 starfsmaður hjá VAKA AS í Noregi.

www.vaki.is

Starfið felur í sér:
•    Sjá um einfaldan hádegisverð fyrir starfsmenn
•    Umsjón með fundarveitingum
•    Frágang í eldhúsi
•    Innkaup á matvælum
•    Ræstingar og þrif í húsakynnum VAKA
•    Innkaup á helstu rekstrarvörum

Hæfniskröfur:
•    Reynsla og áhugi af matreiðslu
•    Lipurð í mannlegum samskiptum
•    Röskur og jákvæður
•    Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

Við bjóðum upp á létt og skemmtilegt starfsumhverfi. Vinnutími er áætlaður mill 10.00-14.00 alla virka daga. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfresturinn er liðinn.

Mynd