Störf í boði
27.1.2012
Fjármálastjóri - Ice Africa
Ice Africa óskar eftir að ráða öflugan fjármálastjóra til starfa. Fyrirtækið er staðsett í Marokkó og er eitt af dótturfélögum Icegroup. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er íslenskur. www.icegroup.is
Starfssvið:
- Yfirumsjón með bókhaldi fyrirtækisins og samskipti við bókhaldsþjónustu.
- Áætlanagerð og eftirlit
- Samskipti við bankastofnanir
- Yfirumsjón með greiðslu og innheimtu reikninga
- Kostnaðareftirlit
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði
- Haldgóð rekstrar- og stjórnunarreynsla
- Frumkvæði, sjálfstæði, og fagmennska í starfi.
- Áræðni til að takast á við ný verkefni í framandi umhverfi
- Góð enskukunnátta, auk þess sem kunnátta í frönsku er mikill kostur.
Umsóknarfresturinn er liðinn.

