Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30.1.2012

Hvar fara stjórnendur út af sporinu?

Styrkleikar stjórnenda geta verið fljótir að breytast í veikleika þegar þeir þurfa að vinna undir álagi. Hogan Development Survey er próf sem gagnast stjórnendum sem vilja bæta frammistöðu sína í samskiptum, ákvarðanatöku og vinnubrögðum.

27.1.2012

Nýr framkvćmdastjóri hjá Valitor - Ástvaldur Jóhannsson

Ástvaldur Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Alþjóðalausna hjá Valitor. 
Starfsemi Alþjóðalausna felst í að bjóða greiðslulausnir á alþjóðlegum vettvangi. Markmið sviðsins er að veita kaupmönnum á internetinu framúrskarandi þjónustu og þannig efla starfssemi Valitor á alþjóðlegan mælikvarða.

24.1.2012

Starfsfólki á vinnumarkađi fjölgađi ekki áriđ 2011

Starfsfólk á vinnumarkaði var samtals 167.300 árið 2011 sem er sama tala og árið 2010 samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Heldur fleiri voru starfandi árið 2009, eða 167.800. Flestir urðu starfsmenn á vinnumarkaðnum árið 2008, eða 178.600, en fara þarf aftur til ársins 2005 til þess að finna færri starfsmenn, en þá töldust 161.300 vera í starfi.

28.10.2011

Reynslan af notkun persónuleikamats

Um árabil hefur Hagvangur verið dreifingaraðili á Íslandi fyrir persónuleikamat sem hannað er af Hogan Assessment Systems í Bandaríkjunum. Það er því etv. ekki úr vegi að meta hver reynsla Hagvangs er af notkun þess og spyrja sig hvort notkun persónuleikamats hafi ekki aukið gæði ráðninga.

28.10.2011

Vinnustađagreining Hagvangs

Hagvangi hefur borist fjöldi fyrirspurna frá smærri fyrirtækjum og stofnunum sem vilja einfalda, hnitmiðaða og hagkvæma leið til að mæla starfsánægju og tengda þætti. Til að bregðast við þessari þörf hefur Hagvangur hannað mjög aðgengilega vinnustaðagreiningu sem byggir á traustum kenningum þar sem framsetning niðurstaðna er mjög einföld og auðskilin. Könnunin er rafræn, örugg og hægt er að klæðskerasauma hana að þörfum hvers og eins.

28.10.2011

Viltu ráđa tíu sinnum hćfara fólk?

Þegar niðursveifla verður í atvinnulífi eykst kostnaðarvitund stjórnenda og þeir velta fyrir sér hvort lækka megi kostnað við ráðningar. Spurningin sem þeir velta fyrir sér er ef til vill hvort það borgi sig að annast ráðningarnar alfarið með innanhússfólki eða hvort hagstæðara sé að leita til ráðningarstofu.

27.10.2011

Stjórnarseta

Hagvangur hefur um árabil haft milligöngu um tilnefningar á fólki til stjórnarsetu í fyrirtækjum. Markmið hvers fyrirtækis felst m.a. í því að byggja upp hæfa stjórn til að auka skilvirkni og bæta árangur. Kröfur og þarfir fyrirtækja breytast í tímans rás og meira er leitað eftir sérþekkingu hvers og eins til að gegna stjórnarsetu.

27.10.2011

Ađ draga úr neikvćđum áhrifum uppsagna

Að undanförnu hafa fjölmörg fyrirtæki þurft að grípa til þess ráðs að segja upp starfsfólki og er sú staða alltaf erfið. Fyrirtækin þurfa að sjá á eftir góðu fólki og þeir sem fyrir uppsögninni verða, þurfa að glíma við það áfall sem uppsögnin hefur í för með sér samhliða því að leita að nýju starfi, sem mörgum getur reynst stórt skref að taka. Á slíkum tímum er mikilvægt að huga vel að þeim einstaklingum sem sagt er upp störfum og ætti það að vera forgangsmál hjá stjórnendum.

14.10.2011

Stjórnendur ţurfa líka ţjálfun

Stjórnandinn má ekki láta eigin símenntun sitja á hakanum, að sögn Katrínar S. Ólafsdóttur framkvæmdastjóra Hagvangs. „Í dag þurfa stjórnendur fyrirtækja að vera svo mörgum vopnum búnir enda verðu viðskipta- og rekstrarumhverfið æ flóknara og sjaldan eða aldrei reynt jafnmikið á að stjórnandinn sé fær og með breiða þekkingu," segir Katrín

6.10.2011

Ţversögn á vinnumarkađi

Atvinnuleysi er 6,7% en þrátt fyrir það segir hagfræðingur Samtaka iðnaðarinns aðildarféllög samtakanna eiga erfitt með að finna starfsfólk. Hann segir blöndu hárra skatta og bóta letja fólk frá vinnumarkaðnum.

6.10.2011

Lokađ 7. október

Vegna árshátíðar starfsfólks Hagvangs verður skrifstofa okkar lokuð föstudaginn 7. október n.k. Hægt er að koma áríðandi skilaboðum til okkar í gegnum þjónustuborð Hagvangs, s. 520-4700. Við munum sinna fyrirspurn þinni með ánægju strax í næstu viku. Góða helgi.

Með kærri kveðju, eigendur og starfsfólk Hagvangs

3.10.2011

Kristján Daníelsson nýr framkvćmdastjóri Kynnisferđa.

Kristján Daníelsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Hótel Sögu, tekur í dag við starfi framkvæmdastjóra Kynnisferða. Kristján hefur starfað sem framkvæmdastjóri og hótelstjóri Radisson Blu Hótel Sögu og Park Inn Ísland sl. fjögur ár en þar á undan var hann sölu- og markaðsstjóri hótelanna í fimm ár. Þá var Kristján nýlega kjörinn formaður Badmintonsambands Íslands.

12.9.2011

Nýr framkvćmdastjóri hjá Seđlabankanum.

Guðmundur Kr. Tómasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri greiðslukerfa Seðlabanka Íslands. Hagvangur óskar honum til hamingju með nýja starfið. Starfið var auglýst á vegum Hagvangs og ráðgjafar Hagvangs aðtoðuðu Seðlabankann við úrvinnslu umsókna, prófanir og viðtöl.

1.9.2011

Nýtt úrrćđi fyrir atvinnulausa

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Vinnumálastofnun skrifuðu nú í morgun undir samstarfssamning, sem miðar að því að skapa aukin tækifæri fyrir fólk í atvinnuleit með fræðslu, handleiðslu og virkri eftirfylgni við þróun eigin viðskiptatækifæra.

12.8.2011

12.253 atvinnulausir í júlílok

Í lok júlí voru 12.253 manns atvinnulausir í landinu. Skráð atvinnuleysi í landinu var að meðaltali 6,6% í mánuðinum samkvæmt Vinnumálastofnun og lækkaði um 0,1% milli mánaða. Ástandið var því ögn skárra og fækkaði um 281 að meðaltali á skrá.


Mynd