Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

6.8.2010

Jón Ásbergsson ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu.

Jón er viðskiptafræðingur að mennt og hefur meðal annars starfað sem framkvæmdarstjóri Loðskinns á Sauðárkróki, Hagkaupa og síðast Útflutningsráðs Íslands.

Íslandsstofa var stofnuð með nýjum lögum í lok apríl á þessu ári og er markmiðið að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendrum mörkuðum og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins.

Undir merkjum Íslandsstofu er sameinuð starfsemi sem áður var á hendi Útflutningsráðs Íslands og markaðssviðs Ferðamálastofu, að því er kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu. Einnig verður náið samstarf við utanríkisþjónustuna og kynningarmiðstöð lista- og menningar í landinu.


Mynd