Fréttir
11.4.2011
Persónuleikapróf í ráðningum
Ráðningar hafa verið í brennidepli í fjölmiðlum undanfarna daga og eru skoðanir skiptar um hvað teljist til faglegra ráðninga. Lengi vel þótti óþarfi að eyða miklum tíma í ráðningar. Viðtölin voru þá stutt og sumir þóttust sjá strax í dyrunum hvort viðkomandi væri hæfur eða ekki. Í dag hefur skilningur á mikilvægi þess að vanda til verka aukist enda eru misheppnaðar ráðningar kostnaðarsamar. Hagvangur hefur haft á að skipa reynslumiklu fagfólki í gegnum árin og hjá okkur hafa fagleg vinnubrögð ávallt verið í hávegum höfð. Þannig höfum við aðstoðað viðskiptavini okkar að ráða hæfustu starfskraftana til sín og jafnframt tryggt umsækjendum sanngjarna meðferð. Með þessu fréttabréfi viljum við koma á framfæri góðum valaðferðum við ráðningar og munum að þessu sinni leggja sérstaka áherslu á persónuleikapróf.
Markmið ráðningaferlis er að finna hæfasta umsækjandann í starfið. Til að standa vel að ráðningu eru tvö grundvallaratriði sem þarf að hafa í huga. Í fyrsta lagi þarf að liggja fyrir góð starfsgreining og hæfnisgreining, þ.e. þeim eiginleikum sem sá sem gegnir starfinu þarf að búa yfir. Þetta má byggja á fyrirliggjandi gögnum og viðtölum við einstaklinga sem þekkja vel til starfsins. Í öðru lagi þarf að meta hæfni umsækjenda með viðurkenndum og raunprófuðum aðferðum. Dæmi um slíkar aðferðir eru stöðluð viðtöl, skrifleg próf, persónuleikamat og hæfnispróf.
Það er algengt að reynsla, menntun og umsagnir séu látin hafa of mikið vægi við mat á umsækjendum. Rannsóknir hafa sýnt að þessir þættir skipta máli upp að vissu marki en stöðluð viðtöl (hegðunartengdar spurningar), persónuleikapróf og hæfnispróf gefa mun betri vísbendingar um hvernig viðkomandi mun koma til með að standa sig í starfi. Umsagnir á fyrst og fremst að nota til að staðfesta það sem áður hefur komið fram í viðtölum og persónuleikaprófum og því er eðlilegt að þeirra sé aflað á seinni stigum ráðningarferlisins. Stöðluð viðtöl þarf að útfæra vandlega og krefst það ákveðinnar sérþekkingar. Persónuleikapróf eru misjöfn að gæðum en Hagvangur hefur um árabil verið dreifingaraðili fyrir persónuleikapróf frá Hogan Assessment Systems sem eru þekkt fyrir framúrskarandi gæði. Markmið þessa fréttabréfs er að kynna persónuleikaprófin frá Hogan.
Þekking stjórnenda á vönduðum vinnubrögðum í ráðningum hefur aukist til muna en þó virðist ennþá brenna við að ekki sé horft á réttu þættina við mat á umsækjendum. Stöðluð viðtöl, persónuleikapróf og hæfnispróf eru þeir þættir sem eiga að fá mest vægi í ráðningarferlinu. Starfsmenn Hagvangs búa yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á þessu sviði og geta því veitt vinnuveitendum sem vilja vanda til verka ómetanlegan stuðning og ráðgjöf í ráðningarferlinu.
Bestu kveðjur,
Katrín S. Óladóttir
Framkvæmdastjóri Hagvangs
Fyrir frekari upplýsingar um persónuleikaprófin frá Hogan hvetjum við ykkur til að hafa samband við Brynhildi Halldórsdóttur, ráðgjafa, brynhildur@hagvangur.is.

