Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

11.4.2011

Minni starfsmannavelta og bætt frammistaða

Persónuleikapróf meta eiginleika í fari fólks sem hafa áhrif á hvernig það ber sig að við vinnu og í samskiptum. Þessa eiginleika getur reynst erfitt að meta í umsóknum, viðtölum eða umsögnum og því veita prófin gagnlegar viðbótarupplýsingar í ráðningarferlinu. Rannsóknir í gegnum tíðina hafa sýnt að niðurstöður persónuleikaprófa spá fyrir um frammistöðu í starfi.  Persónuleikapróf gagnast ekki  aðeins í ráðningum heldur einnig  sem tæki fyrir stjórnendur og almenna starfsmenn við að bæta sig og þróa í starfi. Rannsóknir í gegnum tíðina hafa sýnt að notkun persónuleikaprófa í fyrirtækjum leiðir meðal annars til minni starfsmannaveltu, færri fjarvista, færri mistaka og frávika,  aukinna afkasta og bættrar þjónustu til viðskiptavina.

Hagvangur hefur um árabil verið dreifingaraðili fyrir persónuleikapróf frá hinum virta prófaframleiðanda Hogan Assessment System.  Prófin byggja á 30 ára rannsóknarvinnu og eru í hæsta gæðaflokki á meðal þess sem gerist á sviði persónuleikaprófa í heiminum í dag. Fyrirtæki um heim allan  nýta sér prófin frá Hogan í sínu daglega starfi en þau hafa verið þýdd á yfir 30 tungumál. Yfir 3,5 millj. starfsmanna í 40 löndum hafa farið í gegnum próf frá Hogan.

Niðurstöður prófanna eru settar fram á skýrsluformi en hægt er að velja um mismunandi skýrslur eftir tilgangi hverju sinni.  Prófin nýtast allt frá framlínustörfum til stjórnendastarfa og eru ódýr og þægileg í notkun. Umsækjendur svara spurningalista rafrænt og niðurstöður í formi aðgengilegrar skýrslu eru tilbúnar um leið og lokið er við að svara.

Fyrir frekari upplýsingar um persónuleikaprófin frá Hogan hvetjum við ykkur til að hafa samband við Brynhildi Halldórsdóttur, ráðgjafa, brynhildur@hagvangur.is.

 


Mynd