Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

11.4.2011

Að velja úr stórum hópi umsækjenda

Margir atvinnurekendur standa frammi fyrir þeirri áskorun að þurfa að velja efnilegasta starfskraftinn úr stórum hópi umsækjenda. Í dag er algengt að fjöldi umsókna um hvert starf sé á bilinu 100 til 300. Leitin að þeim einstaklingi sem er líklegastur til að standa sig vel getur þá verið eins og að leita að nál í heystakki og kostar stjórnendur verulegan tíma og fyrirhöfn. 

Advantage er skýrsla frá Hogan sem er sérstaklega hönnuð til notkunar í slíkum tilfellum en hún er einföld, ódýr og lýsir persónueiginleikum sem rannsóknir hafa sýnt að skipta máli í öllum störfum. Persónueiginleikarnir sem skýrslan leggur mat á eru áreiðanleiki, jafnaðargeð og þjónustulund. Skýrslan er ætluð sem sía á stóra umsækjendahópa og byggir á stuttu prófi sem tekur aðeins 5 til 10 mín í svörun. Aðgengileg skýrsla sem sýnir niðurstöður á persónueiginleikum og hugmyndir að viðtalsspurningum er tilbúin um leið og umsækjandi hefur lokið við að svara prófinu.  

advantage_orvar

Myndin sýnir hvernig hægt er að nota Advantage í ráðningarferlinu

Fyrir frekari upplýsingar um persónuleikaprófin frá Hogan hvetjum við ykkur til að hafa samband við Brynhildi Halldórsdóttur, ráðgjafa, brynhildur@hagvangur.is.

 


Mynd