Fréttir
28.10.2011
Viltu ráða tíu sinnum hæfara fólk?
Viltu ráða tíu sinnum hæfara fólk?
Þegar niðursveifla verður í atvinnulífi eykst kostnaðarvitund stjórnenda og þeir velta fyrir sér hvort lækka megi kostnað við ráðningar. Spurningin sem þeir velta fyrir sér er ef til vill hvort það borgi sig að annast ráðningarnar alfarið með innanhússfólki eða hvort hagstæðara sé að leita til ráðningarstofu.
Margvíslegur kostnaður er falinn í þeim tíma sem það tekur að annast vandað ráðningaferli. Móttaka umsókna, forviðtöl, símtöl og ráðningaviðtöl eru til dæmis mjög tímafrek þegar fjöldi umsækjenda er á annað hundrað, sem er ekki óalgengt í dag. Einnig er dulinn sá kostnaður sem hlýst af því þegar ráðning misferst eða starfsmenn hætta eftir skamma dvöl. Þjálfunarkostnaður og lág framleiðni í kjölfar ráðningar geta einnig farið leynt.
Það sem þó gleymist oftast að meta eru afköst starfsmannsins eftir ráðningu. Gríðarlegur munur getur verið á hæfni einstaklinga og er nærtækt að minnast þess að framúrskarandi forritari er t.d. talinn geta afkastað 10 sinnum meira en meðaljón í sama fagi. Þótt munurinn sé ekki alltaf svona mikill er ljóst að safnast þegar saman kemur og fyrirtækið getur borið skarðan hlut frá borði ef ítrustu vandvirkni er ekki gætt við ráðningarnar. Nú sem aldrei fyrr þarf fyrirtækið þitt hæfasta fólkið sem völ er á hverju sinni.
Hagvangur beitir vönduðum vinnubrögðum sem styðjast við rannsóknir. Beitt er persónuleika- og rökhugsunarprófum sem auka gæði og hámarka líkur á að réttur aðili sé valinn. Þannig er ráðningaferlið hannað með langtímasjónarmið að leiðarljósi; að starfsmaðurinn falli vel í sitt starfsumhverfi og hann sé líklegur til að skara fram úr yfir lengri tíma. Það getur verið freistandi að telja einungis til þann kostnað sem til fellur á meðan sjálft ráðningaferlið stendur yfir, en líkast til felst í því töluverð bjartsýni.

