Fréttir
28.10.2011
Vinnustaðagreining Hagvangs
Vinnustaðagreining Hagvangs - Einföld og árangursrík
Hagvangi hefur borist fjöldi fyrirspurna frá smærri fyrirtækjum og stofnunum sem vilja einfalda, hnitmiðaða og hagkvæma leið til að mæla starfsánægju og tengda þætti. Til að bregðast við þessari þörf hefur Hagvangur hannað mjög aðgengilega vinnustaðagreiningu sem byggir á traustum kenningum þar sem framsetning niðurstaðna er mjög einföld og auðskilin. Könnunin er rafræn, örugg og hægt er að klæðskerasauma hana að þörfum hvers og eins.
Ráðgjafar Hagvangs kynna niðurstöður og stýra eftirfylgni með styrkri hendi til að hámarka árangur af mælingunni. Sérstök áhersla er því lögð á eftirfylgnina og Hagvangur hefur áralanga reynslu af slíkum verkefnum. Mælingin er upphafsreitur og árangur næst með markvissri vinnu á grundvelli niðurstaðnanna.
Nánari upplýsingar veita Sturla J. Hreinsson (sturla@hagvangur.is) og Brynhildur Halldórsdóttir (brynhildur@hagvangur.is).

