Fréttir
28.10.2011
Reynslan af notkun persónuleikamats
Hver er reynslan af notkun persónuleikamats við ráðningar?
Um árabil hefur Hagvangur verið dreifingaraðili á Íslandi fyrir persónuleikamat sem hannað er af Hogan Assessment Systems í Bandaríkjunum. Það er því etv. ekki úr vegi að meta hver reynsla Hagvangs er af notkun þess og spyrja sig hvort notkun persónuleikamats hafi ekki aukið gæði ráðninga.
Reynsla sérfræðinga Hagvangs er sú að persónuleikamatið auki réttmæti ráðninga. Þetta er í samræmi við yfirgripsmiklar rannsóknir frá Hogan Assessments. Ánægjulegt er að greina frá því að viðskiptavinum okkar fjölgar stöðugt sem færir okkur heim sanninn um að prófin standi fyllilega undir væntingum. Samkvæmt rannsóknum er viðurkennt að matið bætir við forspá annarra algengra valaðferða, s.s. greiningu ferilskrár, viðtala og umsagna.
Persónuleikamat spáir fyrir um ýmsa vinnutengda hegðun fólks, þar með talið frammistöðu í flestum störfum en einnig má meta ,,skuggahlið" persónuleikans sem kemur fram undir álagi og getur grafið undan starfsferli og skilvirkni starfsmanns. Þegar tekist hefur að koma auga á þessa áhættuþætti má nota upplýsingarnar til að bæta frammistöðu og hraða starfsþróun viðkomandi starfsmanns.
Persónuleikamat er stöðluð og hlutlæg valaðferð, því allir umsækjendur svara sömu spurningum og unnið er úr svörum allra á sama hátt. Stuttan tíma tekur fyrir umsækjanda að svara spurningunum og niðurstöður fást strax að lokinni svörun. Matið veitir meiri upplýsingar um umsækjendur og þannig aukast líkurnar á að hæfasti einstaklingurinn sé valinn í starfið og að framúrskarandi árangur náist í starfi.
Niðurstaðan er því sú að við erum almennt ánægð með árangurinn af notkun persónuleikamatsins við ráðningar. Það sama gildir einnig um flesta ef ekki alla viðskiptavini okkar. Árangurinn af beitingu prófanna er skýlaus. Fyrir Hagvang er það ánægjulegt að geta svarað kröfum um faglegri vinnubrögð við ráðningar.
Á heimasíðu Hagvangs eru ítarlegar og gagnlegar upplýsingar um persónuleikamatið og ráðgjafar Hagvangs eru ávallt fúsir að veita frekari upplýsingar.

