Fréttir
27.10.2011
Að draga úr neikvæðum áhrifum uppsagna
Að draga úr neikvæðum áhrifum uppsagna
Að undanförnu hafa fjölmörg fyrirtæki þurft að grípa til þess ráðs að segja upp starfsfólki og er sú staða alltaf erfið. Fyrirtækin þurfa að sjá á eftir góðu fólki og þeir sem fyrir uppsögninni verða, þurfa að glíma við það áfall sem uppsögnin hefur í för með sér samhliða því að leita að nýju starfi, sem mörgum getur reynst stórt skref að taka. Á slíkum tímum er mikilvægt að huga vel að þeim einstaklingum sem sagt er upp störfum og ætti það að vera forgangsmál hjá stjórnendum. Stjórnendur ættu að tryggja, eins og þeim er frekast unnt, að starfsmenn séu kvaddir með góðum hætti og þeim veitt aðstoð við að finna ný tækifæri á vinnumarkaði. Hagvangur hefur aðstoðað fyrirtæki í hartnær 20 ár sem hafa staðið frammi fyrir þessum vanda og veitir ekki einungis þeim sem fyrir uppsögnunum verða ráðgjöf heldur einnig þeim stjórnendum sem þurfa að standa að þeim. Stjórnendur geta leitað til ráðgjafa Hagvangs um leiðbeiningar um hvernig best sé að standa að ýmsum atriðum er varða uppsagnaferlið.
Uppsögn er ávallt áfall fyrir starfsmann. Viðkomandi getur upplifað mikla höfnun, reiði gagnvart fyrirtækinu eða stjórnendum þess, hræðslu um hvað koma skal auk þess sem margir upplifa tíðindi sem þessi sem mikla skömm. Geri stjórnendur ekkert til að draga úr áfallinu er hætta á að starfsmenn yfirgefi fyrirtækið með neikvæðar tilfinningar til þess og beri jafnvel út óhróður um fyrirtækið. Slíkri auglýsingu hafa fæstir efni á. Eins draga stjórnendur verulega úr möguleikum sínum á því að fá hæfa starfsmenn aftur til starfa síðar þegar betur árar.
Einstaklingsmiðuð ráðgjöf
Ein besta leiðin til að komast yfir áfall sem fylgir uppsögn er að finna starf við hæfi sem fyrst. Það ætti því að vera stjórnendum kappsmál að aðstoða starfsmenn við þá leit. Góð leið til þess er að bjóða starfsfólki upp á ráðgjöf hjá utanaðkomandi og hlutlausum fagaðila. Hagvangur býður upp á einstaklingsráðgjöf þar sem viðkomandi starfsmanni er veitt aðstoð við leit að nýju starfi og móta þar með nýjan starfsferil. Ráðgjöfin fer þannig fram að starfsmaður kemur á fund ráðgjafa þar sem málin eru rædd, starfsmaðurinn fær tækifæri til að ræða uppsögnina og líðan sína en leitast er við að hafa fundinn uppbyggilegan og sjónum beint fram á við. Viðkomandi fær aðstoð við gerð ferilskrár og kynningarbréfs, útskýrt er hvernig ráðningarferlið virkar, hvar leita megi nýrra starfa, og hvernig best sé að bera sig að við það. Lögð er megináhersla á persónulega og markvissa þjónustu ásamt því að miða ráðgjöfina við þarfir hvers og eins. Ráðgjöf fer fyrst fram í formi viðtals og umræðna en í kjölfarið er umsókn viðkomandi fylgt vel eftir. Starfsmaðurinn hefur ávallt aðgang að ráðgjöfum Hagvangs ef spurningar vakna eða frekari aðstoðar er þörf í atvinnuleitinni. Ráðgjafar Hagvangs hafa samband við starfsmanninn að nokkrum tíma liðnum til fylgja málum eftir og veita frekari aðstoð ef þess er þörf. Viðkomandi býðst einnig að taka vandað persónuleikamat frá Hogan Assessment Systems sem greinir áhuga, gildi og viðhorf starfsmannsins í vinnu og hjálpar honum að átta sig á hvers kyns störf og starfsumhverfi hentar honum. Niðurstöður persónuleikamatsins koma í formi skýrslu sem viðkomandi starfsmaður fær til eignar auk þess sem honum býðst að eiga sérstakan fund með ráðgjafa til þess að ræða niðurstöður skýrslunnar. Þeir einstaklingar sem þegar hafa notið góðs af ráðgjöf sem þessari hjá Hagvangi hafa margir litið á uppsögnina sem upphaf nýrra tækifæra og horfa bjartsýnni fram á veginn.
Þeir sem eftir sitja
Uppsagnir skapa oft mikla óvissu og óöryggi meðal þeirra starfsmanna sem eftir sitja. Það getur leitt til hnignunar vinnuandans og dregið úr framleiðni auk þess sem slæmt umtal um fyrirtækið getur breiðist út. Þeir sem eftir sitja geta jafnvel misst trú á framtíð fyrirtækisins og fara að leita atvinnutækifæra annars staðar. Mikilvægt er því að vel sé hlúð að þeim sem og viti starfsmenn að stjórnendur geri það sem í þeirra valdi stendur til að auðvelda fráfarandi starfsfólki leitina að nýju tækifæri og sýni með þeim hætti að þeim sé umhugað um framtíð þeirra má draga verulega úr þeim neikvæðu áhrifum sem uppsagnir hafa á starfsmenn. Í mörgum tilvikum þurfa stjórnendur að grípa til aukinnar ráðgjafar fyrir þá starfsmenn sem eftir sitja, til að bæta andann, framleiðni og öryggi fólks. Mikilvægt er líka að öll upplýsingagjöf sé virk og rétt. Séu ekki fleiri uppsagnir fyrirhugaðar er mikilvægt að fullvissa fólk um að svo sé, ekki aðeins til að útrýma óvissu svo fólki líði betur heldur einnig til þess að draga úr líkum á því að fyrirtækið missi fleiri hæfa einstaklinga frá sér.

