Fréttir
27.10.2011
Stjórnarseta
Stjórnarseta
Hagvangur hefur um árabil haft milligöngu um tilnefningar á fólki til stjórnarsetu í fyrirtækjum.
Markmið hvers fyrirtækis felst m.a. í því að byggja upp hæfa stjórn til að auka skilvirkni og bæta árangur. Kröfur og þarfir fyrirtækja breytast í tímans rás og meira er leitað eftir sérþekkingu hvers og eins til að gegna stjórnarsetu. Því má gera ráð fyrir að fyrirtæki leggi í auknu mæli áherslu á faglegt ráðningarferli til að tryggja að ekki aðeins sé fenginn hæfur einstaklingur í stjórn heldur að viðkomandi uppfylli ákveðna hæfileika, getu, þekkingu og áhuga til að gegna starfinu. Yfirsýn og sterk tengsl Hagvangs við atvinnulífið veitir stjórnum sömu þjónustu og viðhöfð er í ráðningum í stjórnunarstöður.
Stjórnendur, bæði konur og karlar eru reiðubúin að taka að sér ábyrgðarstörf og hafa gefið leyfi sitt til að Hagvangur annist milligöngu um slíkt fyrir sína hönd.
Nánari upplýsingar veita Katrín S. Óladóttir framkvæmdastjóri (katrin@hagvangur.is) og Þórir Þorvarðarson, stjórnarformaður og ráðningarstjóri. (thorir@hagvangur.is)

