Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.1.2012

Nýr framkvæmdastjóri hjá Valitor - Ástvaldur Jóhannsson

Ástvaldur er fæddur 1961 og uppalinn á Akranesi.  Hann hefur víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu eftir störf sín erlendis og á aðalskrifstofu Össurar hf. undanfarinn áratug. Þar áður átti hann sæti í framkvæmdastjórn Nýherja hf. og Pennans ehf.  Ástvaldur er með framhaldsmenntun frá Heriot-Watt University í Edinburg í Skotlandi og meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá HÍ.

Ástvaldur er kvæntur Ragnhildi Arnljótsdóttur, ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins, og eiga þau þrjú börn.

Hann hefur þegar tekið til starfa.

Hagvangur óskar Ástvaldi til hamingju með nýtt starf.


Mynd