Beint á leiðarkerfi vefsins

Hlutverk

Starfsmenn fyrirtækisins hafa unnið mikið brautryðjendastarf í ráðgjöf á Íslandi. Áralöng þekking og reynsla af atvinnulífi á Íslandi er mikill styrkleiki fyrirtækisins.
Stöðug áhersla er lögð á nýjungar í þjónustu og áreiðanleika í ráðningum og ráðgjöf.

Í upphafi bar mest á ráðningum í stjórnunar- og sérfræðistörf en fljótlega fór fyrirtækið að bjóða viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu við hvers konar ráðningar.

Fyrirtækið hefur átt því láni að fagna að geta þjónustað bæði stór og smá íslensk fyrirtæki og opinberar stofnanir. Jafnframt hefur Hagvangur tekið þátt í ráðgjafaverkefnum erlendis hin síðari ár. Hefur fyrirtækið verið í fararbroddi hvað varðar starfsaðferðir, þróun og þjónustu frá upphafi.

Sérstaða Hagvangs felst m.a. í eftirfarandi:

  • Markmið Hagvangs frá upphafi hefur verið að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi persónulega þjónustu
  • Traust og vönduð vinnubrögð – gagnkvæmur trúnaður
  • Áralöng þekking og reynsla á íslenskum vinnumarkaði
  • Sterkur faglegur bakgrunnur starfsfólks
  • Ómetanleg reynsla af starfsmannaráðgjöf og ráðningum innanlands sem erlendis
  • Góð tengsl við erlend ráðgjafafyrirtæki
  • Faglegri úttekt Persónuverndar á verklagi og öryggismálum Hagvangs er lokið

Mynd