Landsnet leitar að kraftmiklum og framsýnum leiðtoga til að taka við nýju starfi aðstoðarforstjóra. Við viljum ráða öflugan einstakling með reynslu af stjórnun, þróun og breytingum, sem er tilbúinn að hugsa hlutina upp á nýtt og brennur fyrir áskorunum við uppbyggingu og rekstur raforkukerfisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Staðgengill forstjóra og situr í framkvæmdastjórn Landsnets
Stjórnun og rekstur í samræmi við nánari ákvörðun forstjóra
Ráðgjöf til forstjóra og stjórnar við stefnumótun, innleiðingu stefnu og ákvarðanatöku
Leiðir þverfagleg teymi við innleiðingu nýrra lausna sem auka rekstrarárangur
Samskipti við hagsmunaaðila og opinbera stjórnsýslu
Fylgist með þróun og nýsköpun í orkugeiranum og innleiðir bestu starfsvenjur
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
Víðtæk reynsla af stjórnun, innleiðingu stefnu og breytingum
Þekking á breytingastjórnun
Sterk leiðtogahæfni
Framúrskarandi samskiptahæfni
Hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti
Framsýni og færni í að nýta tækni og gögn til að bæta rekstur
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.