Aðstoðarskólameistari – Menntaskóli Borgarfjarðar

Menntaskóli Borgarfjarðar (MB) óskar eftir að ráða aðstoðarskólameistara. Aðstoðarskólameistari er lykilhlekkur í forystu skólans, staðgengill skólameistara og nánasti samstarfsaðili hans í daglegri stjórnun, stefnumótun og þróun skólastarfs. Um er að ræða fullt starf og þarf umsækjandi að geta hafið störf í síðasta lagi 1. ágúst nk. 

Leitað er að framsýnum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á menntamálum, einlægan metnað fyrir velgengni nemenda og framgangi í námi auk vilja til að vinna að framsæknu skólastarfi með nemendum, starfsfólki, stjórn og nærsamfélagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mótun skólastarfs á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla
  • Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun og nýsköpun í skólastarfi
  • Skipulag námsframboðs
  • Skipulag kennslu og stundaskrár
  • Veitir kennslufræðilega forystu
  • Umsjón með námsferlum nemenda
  • Ábyrgð á námsmati og mati náms úr öðrum skólum
  • Ábyrgð á gæðastarfi og sjálfsmati
  • Aðkoma að miðlun upplýsinga á miðlum MB
  • Ábyrgð á kennslukerfi og tæknilegum lausnum
  • Samskipti við nemendur, starfsfólk og stjórn
  • Umsjón með útskriftarnemum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og leyfisbréf kennara, viðbótarmenntun í stjórnun æskileg.
  • Reynsla af kennslu/stjórnun í framhaldsskóla æskileg
  • Reynsla og þekking á stefnumótun og mótun framtíðarsýnar menntastofnana
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Gott vald á íslensku og ensku í bæði töluðu og rituðu máli
  • Áhugi á nýtingu tækni í skólastarfi
  • Hreint sakavottorð og gott orðspor

Menntaskóli Borgarfjarðar er áfangaskóli sem býður upp á fjórar bóknámsbrautir til stúdents prófs; opna braut, félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut og íþróttafræðibraut. Við skólann er starfrækt starfsbraut fyrir nemendur sem hafa greiningu fagaðila og geta ekki nýtt sér annað nám við skólann.

Menntskóli Borgarfjarðar er sveigjanlegur og framsækinn skóli, þar sem lögð er áhersla á að vera til fyrirmyndar um kennsluhætti, góða stjórnunarhætti, rekstur, velferð, aðbúnað og þjónustu við nemendur og starfsmenn. Skólinn leggur áherslu á að styrkja og efla námsframboð til að koma til móts við þarfir og áhuga nemenda á upptökusvæði skólans. Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunannaárið 2022 fyrir framsækna endurskoðun á námskrá með það að leiðarljósi að búa nemendur sem best undir áskoranir í lífi og starfi í nútíð og framtíð.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi.

Nánari upplýsingar veita

Bragi Þór Svavarsson, skólameistari – bragi@menntaborg.is

Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is

Borgarnes
Umsóknarfrestur: 25.03.2026

Aðstoðarskólameistari – Menntaskóli Borgarfjarðar

Borgarnes
Umsóknarfrestur: 25.03.2026