Blikksmiður

Viðskiptavinur Hagvangs leitar að áhugasömum og duglegum einstaklingi til starfa við blikksmíði. Um er að ræða rótgróið og öflugt félag á höfuðborgarsvæðinu. Hvort sem þú ert með reynslu og/eða menntun í faginu eða ert að stíga þín fyrstu skref og hefur áhuga á að læra, hvetjum við þig til að sækja um.

Helstu verkefni

  • Almenn blikksmíði og tengd verkefni
  • Vinna við fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Samvinna við öflugt og faglegt teymi

Hæfniskröfur

  • Áhugi á faginu og vilji til að læra
  • Ábyrg og sjálfstæð vinnubrögð
  • Samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi
  • Reynsla og/eða menntun í blikksmíði er kostur en ekki skilyrði

Það sem við bjóðum réttum aðila

  • Þjálfun og aðlögun í starfi eftir þörfum
  • Tækifæri til að vinna með nýjustu tæki og tól í faginu
  • Góð vinnuaðstaða og jákvætt starfsumhverfi
  • Samkeppnishæf kjör 

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn stutta umsókn þar sem áhugi og bakgrunnur er kynntur.

Nánari upplýsingar veitir

Stefanía Hildur Ásmundsdóttir – stefania@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 08.03.2026

Blikksmiður

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 08.03.2026