Deildarstjóri á Lækjarbrekku – Hólmavík

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir deildarstjóra í leikskólann Lækjarbrekka á Hólmavík sem er samrekinn leik, -grunn- og tónskóli. Mikið og náið samstarf er á milli hinna samreknu skóla. Skólinn er með um 40 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Í leikskóladeildinni eru tveir hópar, eldri og yngri.

Áhersla er á samstarf milli leik- og grunnskóla og flæði starfsfólks og sameiginlega þátttöku í ýmsum verkefnum. Fylgt er uppeldisstefnu jákvæðs aga. Skólinn er grænfánaskóli og stefnir að því að vera heilsueflandi skóli.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á daglegri stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Þátttaka í gerð skólanámskrár, ársáætlun, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum
  • Stýra faglegu starfi deildarinnar
  • Ábyrgð á og stjórnun deildarfunda og skipulagning undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar

Hæfnikröfur

  • Starfsleyfi sem leikskólakennari eða önnur uppeldis- eða kennaramenntun
  • Reynsla af starfi á leikskóla og stjórnun
  • Faglegur metnaður og áhugi á að starfa með börnum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Leiðtogahæfni, jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025. Um er að ræða fullt starf.

Strandabyggð sem skiptist í þéttbýlið Hólmavík og dreifbýli er ríflega 420 manna samfélag og þjónustukjarni á norðanverðum Vestfjörðum. Á Hólmavík er öll grunnþjónusta til staðar, og margt spennandi fram undan í uppbyggingu samfélagsins.

Stutt er í fallega náttúru og friðsælt umhverfi sem einkennist af fjöllum og friðsælum fjörðum. Þetta svæði er fullkomið fyrir þá sem vilja tengjast náttúrunni, njóta kyrrðarinnar og á sama tíma vera í nánd við heillandi menningu og heimamenn.

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri – skolastjori@strandabyggd.is

Elín Dögg Ómarsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi – elin@hagvangur.is

Hólmavík
Umsóknarfrestur: 26.05.2025

Deildarstjóri á Lækjarbrekku – Hólmavík

Hólmavík
Umsóknarfrestur: 26.05.2025