Icepharma leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að leiða fimm manna söluhóp á sviði heilbrigðislausna.
Ef þú ert með leiðtogahæfileika og reynslu á heilbrigðismarkaði, þá gætum við verið að leita að þér til að taka við spennandi starfi sem deildarstjóri hjá Icepharma.
Þú færð tækifæri til að leiða samstarf við þekkta framleiðendur á heimsvísu. Vörur sem um ræðir eru m.a. næringarvörur frá Nutricia, sáravörur frá Smith & Nephew og myndgreiningarbúnaður frá Siemens Healthineers.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun og rekstur söluhópsins
Áætlanagerð og markmiðasetning
Leiða markaðssetningu og sölu á heilbrigðislausnum með kynningum, fræðslu og eftirfylgni
Myndun og viðhald viðskiptatengsla við heilbrigðisstarfsfólk og stofnanir
Samskipti við erlenda birgja og tengslamyndun
Viðskiptaþróun og greining vaxtartækifæra
Verkefnastjórn ásamt þátttöku í verðfyrirspurnum og útboðum
Skipulagning og þátttaka á fundum og ráðstefnum, hérlendis og erlendis
Hæfni
Reynsla af stjórnun og mannaforráðum er æskileg
Góð leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í tengslamyndun og mannlegum samskiptum
Menntun sem nýtist í starfi
Rekstrarlæsi og greiningarhæfni
Reynsla af markaðs- og sölustarfi með heilbrigðisvörur eða lyf er æskileg
Framsýni, sjálfstæði og hæfni til að ná árangri í krefjandi verkefnum
Gott vald á íslensku og ensku
Vinnustaðurinn
Mötuneyti í hæsta gæðaflokki
Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
Áhersla er lögð á fræðslu starfsmanna
Skýr starfsmannastefna um jákvæð samskipti og vinnustaðamenningu
Fjölbreytt úrval af vítamínum og steinefnum á vinnustaðnum
Líkamsræktarstyrkir
Öflugt starfsmannafélag og sjálfsprottnir starfsmannahópar fyrir ýmis áhugamál
Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa
Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Icepharma er í fararbroddi á íslenskum lyfja- og heilbrigðismarkaði. Kjarninn í starfsemi okkar er að auka lífsgæði með öflugu framboði af heilsueflandi vörum. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 manns við sölu og markaðssetningu, sérfræðiráðgjöf og þjónustu. Við leggjum áherslu á metnað, frumkvæði, gleði og svigrúm starfsfólks til að vaxa og þróast í starfi.
Icepharma er hluti af samstæðunni Ósar – lífæð heilbrigðis hf., þar sem samtals starfa rúmlega 200 manns. Á sviði Heilbrigðislausna starfa um 18 manns í frábærri liðsheild.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og í samræmi við lög um meðferð persónuupplýsinga.