Náttúrustofa Suðausturlands auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Stofan er alhliða rannsóknar- og þjónustustofnun í náttúrufræðum og starfar eftir lögum 54/2024 um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur. Starfssvæðið nær yfir Sveitarfélagið Hornafjörð og Skaftárhrepp og er stofan með aðsetur á Höfn og starfsstöð á Kirkjubæjarklaustri. Starfsstöð forstöðumanns getur verið á Höfn í Hornafirði eða Kirkjubæjarklaustri. Árið 2024 voru stöðugildi hjá stofunni 3,8 talsins.
Sjá nánar á heimasíðu Náttúrustofu Suðausturlands, www.nattsa.is
Helstu verkefni
Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi Náttúrustofunnar.
Leiðir rannsóknir og styrkjaöflun á verkefnasviði Náttúrustofunnar.
Fjármál, áætlanagerð og stefnumörkun í samstarfi við stjórn.
Ábyrgð á verkefnasamningum.
Mannauðsstjórn.
Samskipti við stjórnvöld, aðildarsveitarfélög, samstarfsaðila og viðskiptavini.
Veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar.
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði náttúrufræða og reynsla af rannsóknum eru skilyrði
Framhaldsmenntun á sviði náttúrufræða er æskileg
Haldbær starfsreynsla af umhverfis- og náttúrufræðistörfum
Reynsla af styrkumsóknum og sjálfstæði í starfi
Stjórnunar- og rekstrareynsla er kostur
Forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Hæfni í ræðu og riti á íslensku og ensku
Frumkvæði og metnaður í starfi
Umsókn skal fylgja ferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.