Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.
Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka. Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar.
Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Ef þú átt erindi og sterkan áhuga á vegferð með okkur í átt að raforkudrifinni verðmætasköpun á traustum grunni viljum við gjarnan heyra í þér!
Forstöðumaður Stefnu og fjárfestinga stýrir forgangsröðun og innleiðingu stefnumarkandi verkefna, ásamt stærri fjárfestingaverkefnum þar sem sjálfbærni og áhættustýring hafa mótandi áhrif. Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi á skrifstofu forstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Uppsetning og stjórnun verkefnastofu um innleiðingu stefnu- og lykilverkefna
Uppsetning og stjórnun yfirlits og forgangsröðunar stærri fjárfestinga í takt við stefnu