Framkvæmdastjóri – Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands (EBÍ) leitar að öflugum og ábyrgum framkvæmdastjóra til að leiða starfsemi félagsins. Um er að ræða lykilhlutverk með mikla ábyrgð á rekstri, fjármálum og samskiptum við fjölbreytta hagsmunaaðila. Starfshlutfall er sveigjanlegt og getur verið allt að 100% eftir samkomulagi.

Helstu ábyrgðar- og verkefnasvið

  • Daglegur rekstur EBÍ í samræmi við lög, reglur og samþykktir
  • Undirbúningur og framkvæmd ákvarðana stjórnar
  • Fjármálastjórnun, fjárhagsáætlanagerð og reikningshald
  • Yfirumsjón með eignastýringu og samskipti við eignastýringaraðila
  • Undirbúningur stjórnarfunda, fulltrúaráðsfunda og aðalfunda
  • Umsjón með úthlutunum, styrkjum og forvarnarverkefnum
  • Samskipti við sveitarfélög og aðra samstarfsaðila

Menntun og hæfni

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun, fjármálum, reikningshaldi og rekstri
  • Góð þekking á fjárfestingum og eignastýringu er kostur
  • Skipulögð, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskipta- og greiningarhæfni
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Reynsla af samskiptum við sveitastjórnir er kostur

Brunabótafélag Íslands hefur starfað í 110 ár og á sér langa og rótgróna sögu í íslensku samfélagi. Félagið var stofnað á fyrstu árum viðskiptafrelsis til að sinna brunatryggingum húseigna og þróaðist síðar í öflugt vátrygginga- og eignarhaldsfélag. Árið 1994 var starfsemin færð í núverandi form sem Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands (EBÍ) með lögum 68/1994, þar sem fulltrúaráð, skipað af sveitarstjórnum, fer með stjórnunar- og fjárhagsleg völd. Félagið er í dag sjálfstætt en hlutverk EBÍ er að tryggja vandaða stjórnun, ábyrga eignastýringu og traustan rekstur í samræmi við lög, reglur og samþykktir félagsins. Í nánu samstarfi við sveitarfélög er markmið félagsins að standa vörð um og ávaxta fjármuni félagsins, vera traustur bakhjarl í forvarnarstarfi í brunamálum og styðja við önnur samfélagslega mikilvæg verkefni.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Upplýsingar veita

Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is

Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 17.05.2026

Framkvæmdastjóri – Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 17.05.2026