Framkvæmdastjóri – Félagsbústaðir

Félagsbústaðir leita að drífandi og framsýnum aðila sem hefur skilning á því umhverfi sem félagið starfar í. Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra framtíðarsýn, metnað til árangurs og hæfni til að leiða öflugan hóp starfsmanna í félagi sem gegnir samfélagslega mikilvægu hlutverki.

Helstu verkefni

  • Yfirstjórn og ábyrgð á daglegum rekstri Félagsbústaða
  • Ábyrgð á fjármálum félagsins, áætlanagerð og fjármögnun
  • Þátttaka í stefnumótun og eftirfylgni stefnumála í samstarfi við stjórn
  • Upplýsingagjöf til stjórnar og undirbúningur gagna
  • Samskipti og samstarf við Reykjavíkurborg, aðrar opinberar stofnanir og hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi; meistarapróf er skilyrði
  • Víðtæk stjórnunar- og rekstrarreynsla, m.a. á sviði opinberrar stjórnsýslu
  • Reynsla á sviði velferðar- og félagsmála er æskileg
  • Þekking og reynsla af starfsemi sveitarfélaga
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Skýr skilningur á hlutverki og samfélagslegu mikilvægi Félagsbústaða

Félagsbústaðir hf. sinna lögbundnu verkefni á sviði húsnæðismála fyrir hönd eiganda síns, Reykjavíkurborgar. Hlutverk Félagsbústaða hf. er rekstur og útleiga á félagslegu húsnæði, byggingarstarfsemi og kaup og sala fasteigna auk annarra verkefna er tengjast starfsemi félagsins. Félagsbústaðir hf. eiga og leigja út tæplega 3.200 íbúðir í öllum borgarhlutum. Markvisst er unnið að því tryggja húsnæðisöryggi, mæta þörfum fyrir félagslegt leiguhúsnæði í borginni og veita leigjendum áreiðanlega og góða þjónustu.

Félagið leigir út íbúðir til einstaklinga og fjölskyldna sem úthlutað hefur verið félagslegu leiguhúsnæði af velferðarsviði Reykjavíkurborgar.

Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla samkvæmt félagslegum markmiðum sem eigandinn, Reykjavíkurborg, setur og skal öllum hagnaði félagsins einungis ráðstafað í þágu þessa

markmiðs félagsins. Gildi Félagsbústaða hf. eru samvinna, virðing, þjónusta.

Frekari upplýsingar um félagið og starfsemi þess er að finna á felagsbustadir.is

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar

Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is

Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 24.05.2026

Framkvæmdastjóri – Félagsbústaðir

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 24.05.2026