Framkvæmdastjóri – Festa lífeyrissjóður

Festa lífeyrissjóður leitar að framsýnum og öflugum framkvæmdastjóra sem býr yfir skýrri sýn, leiðtogahæfileikum og þekkingu á fjármálum og lífeyriskerfinu. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan stjórnanda með brennandi áhuga á lífeyrismálum á Íslandi.

Framkvæmdastjóri hefur yfirumsjón með daglegum rekstri sjóðsins og tryggir faglega og ábyrga framkvæmd stefnu stjórnar.

Helstu verkefni

  • Leiða rekstur og starfsfólk sjóðsins af fagmennsku og framtíðarsýn
  • Tryggja framkvæmd fjárfestingastefnu og innra eftirlit
  • Styðja stjórn í stefnumótun og veita greinargóða upplýsingagjöf
  • Vera fyrirsvarsmaður sjóðsins út á við og efla ímynd Festu sem trausts samstarfsaðila sjóðfélaga

Við leitum að einstaklingi með

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. fjármál, viðskipti, verkfræði, lögfræði)
  • Reynslu af stjórnun, rekstri og stefnumótun
  • Leiðtogahæfni og góða samvinnu- og samskiptatækni
  • Þekkingu á eignastýringu og lífeyrissjóðakerfinu
  • Frumkvæði, metnað og vilja til að ná fram árangri

Um Festu lífeyrissjóð

Festa þjónustar tæplega 21.000 sjóðfélaga og rúmlega 13.000 lífeyrisþega, aðallega á Suðurnesjum, Vesturlandi og Suðurlandi. Um 3.200 launagreiðendur greiða til sjóðsins fyrir hönd sjóðfélaga. Iðgjöld ársins 2025 námu 18,8 milljörðum krónaog lífeyrisgreiðslur 9,3 milljörðum króna. Heildareignir nema um 353 milljörðum króna. Sjóðurinn rekur bæði samtryggingardeild og tvær séreignardeildir. Aðalskrifstofa sjóðsins er í Reykjanesbæ.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna á festa.is

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Frekari upplýsingar

Sverrir Briem – sverrir@hagvangur.is

Reykjanesbær
Umsóknarfrestur: 31.05.2026

Framkvæmdastjóri – Festa lífeyrissjóður

Reykjanesbær
Umsóknarfrestur: 31.05.2026