Við leitum að reynslumiklum, faglegum og árangursdrifnum framkvæmdastjóra fjármála Húsasmiðjunnar. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf í framkvæmdastjórn eins stærsta og þekktasta smásölufyrirtækis landsins. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í áframhaldandi mótun, rekstri og vexti félagsins í hröðu og samkeppnisdrifnu umhverfi. Ennfremur ber þessi aðili ábyrgð á upplýsingatæknisviði fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri fjármála heyrir beint undir forstjóra, situr í framkvæmdastjórn og kemur að stefnumótun og öðrum ákvörðunum sem varða rekstur Húsasmiðjunnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heildarumsjón með fjármálum; fjárhagsáætlanir, greiningar, kostnaðareftirlit, sjóðstreymi og fjárfestingarákvarðanir
Tryggja áreiðanlegt og skilvirkt fjármálakerfi og innra verklag (reglur, umbætur, áhættustýring)
Leiða árlegt uppgjör og skýrslugerð til stjórnenda og eigenda, samskipti við endurskoðendur og bankastofnanir
Yfirumsjón með upplýsingatæknisviði; stefnumótun, innleiðing kerfa, gagnaöryggi og stafrænum lausnum sem styðja við verslun og rekstur
Stuðla að sjálfbærni og hagkvæmni í rekstri með gagnadrifnum ákvörðunum
Menntun og hæfni
Haldbær og fjölþætt reynsla af fjármálastjórnun
Sterkir leiðtogahæfileikar, greiningar- og samstarfshæfni
Mikil þekking á fjárhags- og greiningartólum, gagnaöryggi og stafrænum umbreytingum
Sterk leiðtogahæfni, samskiptahæfni, færni í stefnumótun, innleiðingu stefnu og breytingastjórnun
Mjög gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Húsasmiðjan er eitt stærsta smásölufyrirtæki landsins og hefur lagt grunn að góðu samfélagi í 70 ár. Við veitum húseigendum og fagfólki í byggingariðnaði aðgang að réttu lausnunum og ráðgefandi þjónustu undir merkjum Húsasmiðjunnar, Blómaval og Ískraft á um 20 stöðum um land allt. Hjá okkur starfa 550 starfsmenn í ólíkum störfum. Húsasmiðjan er hluti af dönsku byggingavörukeðjunni BYGMA sem rekur verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Póllandi, Íslandi og Færeyjum.