Eimskip leitar að reyndum og árangursdrifnum leiðtoga í starf framkvæmdastjóra Innanlandssviðs. Við viljum liðsfélaga sem leiðir áframhaldandi þróun og vöxt sviðsins og ber heildarábyrgð á rekstri, stefnumótun og árangri. Undir sviðið heyrir allur akstur og vörudreifing félagsins á Íslandi ásamt vöruhúsum, frystigeymslum og fasteignaumsjón. Þar starfa um 380 manns af 20 þjóðernum á 16 stöðum víðsvegar um landið.
Starfið krefst mikilla leiðtogahæfileika og góðs skilnings á rekstri, ásamt hæfni til að tengja stefnu við framkvæmd og þróa lausnir sem styðja við árangur viðskiptavina og félagsins í heild. Um er að ræða stöðu í framkvæmdastjórn, þar sem viðkomandi hefur bein áhrif á forgangsröðun og lykilákvarðanir félagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á árangri og þróun sviðsins
Ábyrgð á rekstrar- og fjárhagsáætlun, kostnaðar- og tekjustýringu og afkomu sviðsins í samræmi við lykilmælikvarða
Móta stefnu og markmið og tryggja markvissa eftirfylgni
Fylgja eftir þróun og breytingum með áherslu á samkeppnishæfni og vöxt
Leiða þróun stjórnendateymis og mannauðs á sviðinu
Stuðla að virðissköpun og lausnum sem mæta þörfum viðskiptavina
Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og lykilhagsmunaaðila innan og utan félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
Framúrskarandi leiðtogahæfileikar og samskiptahæfni
Víðtæk reynsla af rekstri og stjórnun í krefjandi og síbreytilegu umhverfi
Hæfileiki til að fá fólk með sér og leiða breytingar sem skila árangri
Framsýni, frumkvæði, metnaður og drifkraftur
Sterk greiningarhæfni og geta til að öðlast skýra yfirsýn í flóknu rekstrarumhverfi
Hæfni til að taka upplýstar ákvarðanir og forgangsraða í krefjandi aðstæðum
Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Eimskip hefur verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914. Félagið rekur 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum, meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.