Orlofssjóður BHM gegnir mikilvægu hlutverki í að styðja félagsfólk BHM til að njóta fjölbreyttra og hagkvæmra orlofskosta. Starfsemi sjóðsins er umfangsmikil og spannar rekstur orlofseigna um allt land ásamt fjölbreyttri þjónustu tengdri orlofsmálum.
Framkvæmdastjóri leiðir daglegan rekstur sjóðsins og vinnur í nánu samstarfi við stjórn Orlofssjóðs og starfsfólk BHM að stefnumótun og eftirfylgni markmiða. Í boði er fjölbreytt starf í lifandi umhverfi fyrir einstakling sem vill taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu á starfsemi sem skiptir félagsfólk BHM miklu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun og rekstur sjóðsins, þ.m.t. áætlanagerð og mannaforráð
Eftirfylgni með ákvörðunum stjórnar og framkvæmd þeirra
Undirbúningur funda og gagnaöflun
Gerð rekstraráætlana og ábyrgð á fjármálum sjóðsins
Umsjón með kynningarstarfi og upplýsingagjöf
Stefnumótun og langtíma markmiðasetning í samstarfi við stjórn
Samskipti við félagsfólk, verktaka, fyrirtæki og aðra hagaðila
Umsjón með kaupum og sölu fasteigna ásamt rekstri og viðhaldi þeirra
Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri sjóðsins, umsýslu orlofseigna og þjónustu við sjóðfélaga
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
Reynsla af fjármálum og rekstri
Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
Reynsla af verkefnastjórnun
Frumkvæði, metnaður og drifkraftur
Reynsla af fasteignarekstri og umsýslu er kostur
Góð skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt