Ert þú drífandi leiðtogi með ástríðu fyrir vélbúnaði, tækni- og tölvukerfum? Þrífst þú í kraftmiklu umhverfi þar sem þú getur knúið áfram skilvirkni skipulags og tækniframfara? Ef svo er, þá höfum við spennandi tækifæri fyrir þig!
Coripharma leitar að kraftmiklum og framsýnum leiðtoga með reynslu af rekstri framleiðslu- og/eða tölvukerfa í nýtt starf Framkvæmdastjóra Verkfræðisviðs.
Framkvæmdastjóri Verkfræðisviðs (e. Director of Engineering Operations) ber ábyrgð á að allur vélbúnaður, hugbúnaður, framleiðslukerfi, innviðir og fasteignir, þar á meðal viðhald og stöðugar umbætur, séu til staðar til að styðja við ört vaxandi lyfjaframleiðslu félagsins. Umhverfis, öryggis- og heilsumál félagsins heyra einnig undir Verkfræðisvið.
Undir Framkvæmdarstjóra Verkfræðisviðs heyra tæknideild, tölvudeild og sérfræðingur í umhverfi, heilsu og öryggismálum, en á sviðinu starfa í dag samtals 15 manns. Framkvæmdastjóri Verkfræðisviðs heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Við leitum að manneskju með
Háskólamenntun í verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegu tækninámi
Minnst fimm ára stjórnunarreynslu, helst af rekstri stórra tækni- eða upplýsingatæknideilda
Leiðtogahæfni, drifkraft og metnað fyrir að byggja upp liðsheild
Skipulagshæfileika, nákvæmni og öguð vinnubrögð
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja og veltir árlega yfir 5 milljörðum króna. Hjá félaginu starfa um 220 manns. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is