Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags – Landsnet
Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.
Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka. Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar.
Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Ef þú átt erindi og sterkan áhuga á vegferð með okkur í átt að raforkudrifinni verðmætasköpun á traustum grunni viljum við gjarnan heyra í þér!
Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags ber meðal annars ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini og hagaðila og leiðir teymi á sviði viðskipta- og gjaldskrárþróunar. Viðkomandi situr í framkvæmdastjórn Landsnets.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stýra og efla samband við núverandi og verðandi viðskiptavini fyrirtækisins
Byggja upp og leiða teymi viðskipta- og gjaldskrárþróunar
Stýra undirbúningi, umhverfismati, samningagerð og landeigendamálum framkvæmda
Efla tengsl og samband við hagaðila um hagsmuni viðskipta og samfélags
Viðkomandi er hluti af framkvæmastjórateymi Landsnets
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Starfsreynsla af tengdri starfsemi og samningagerð er kostur
Farsæl reynsla sem stjórnandi öflugra liðsheilda
Stefnu- og árangursmiðuð hugsun
Ríkt frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptafærni og hæfileiki að tjá sig í ræðu og riti
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.