Innkaupafulltrúi – Samhentir

Samhentir leita að metnaðarfullum og sjálfstæðum innkaupafulltrúa til starfa í öflugu teymi innkaupadeildar fyrirtækisins. Innkaupasviðið hefur umsjón með daglegum innkaupum á stöðluðum og sérhönnuðum umbúðum, samskiptum við birgja, birgðastýringu og umsýslu tollamála með áherslu á gæði, hagkvæmni og áreiðanleika í afhendingum. Innkaupafulltrúi vinnur náið með samstarfsfólki innan fyrirtækisins og hefur mikilvægt hlutverk í því að tryggja skilvirka framkvæmd innkaupa og stöðuga leit að tækifærum til hagræðingar og umbóta.

Helstu verkefni

  • Umsjón með daglegum innkaupum og samskipti við innlenda og erlenda birgja
  • Gerð og eftirfylgni samninga um verð, gæði og afhendingar
  • Umsjón með kostnaðar- og birgðagreiningum
  • Birgðastýring og eftirfylgni afhendinga
  • Umsjón með almennum tollamálum í tengslum við innkaup
  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Reynsla af innkaupastörfum eða skyldum verkefnum
  • Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi við birgja
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Greiningarhæfni og viðskiptalegt innsæi
  • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Þekking á AGR, Microsoft Dynamics NAV eða sambærilegum kerfum er kostur
  • Áhugi á nýtingu gervigreindar í innkaupa- og greiningarvinnu er kostur
  • Þekking eða reynsla af tollamálum er kostur

Samhentir eru stærsti umbúðaaðili á Íslandi og hafa um áratugaskeið byggt upp sterka stöðu á markaði með fagmennsku, gæði og áreiðanleika að leiðarljósi. Fyrirtækið leggur áherslu á gott samstarf, öflugt teymi og faglegt starfsumhverfi þar sem unnið er markvisst að umbótum og þróun í rekstri.

Nánari upplýsingar

Hlynur Atli Magnússon – hlynur@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 13.05.2026

Innkaupafulltrúi – Samhentir

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 13.05.2026