Vegna fjölda fyrirspurna leitum við að launafulltrúum fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Bæði er óskað eftir mjög reyndum launafulltrúum og eins er óskað eftir minna reyndum aðilum sem þó hafa þekkingu, menntun eða einhverja reynslu á þessu sviði.
Helstu verkefni eru t.d:
Launavinnsla
Skil á skilagreinum til lífeyrissjóða, stéttarfélaga og opinberra aðila
Skráning og frágangur launagagna
Greiningar og framsetning tölulegra gagna
Önnur tilfallandi verkefni
Hafir þú áhuga á að starfa við launavinnslu þá hvetjum við þig til að leggja inn umsókn. Við munum hafa samband þegar/ef þín umsókn kemur til greina fyrir störf á þessu sviði.