Listrænn ráðgjafi – Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) auglýsir laust til umsóknar starf listræns ráðgjafa í 50-75% starfshlutfall (umsemjanlegt). Við leitum að skapandi, skipulögðum og öflugum einstaklingi með breiða þekkingu og ástríðu fyrir tónlist og tónlistarlífi á Íslandi sem og erlendis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á mótun og framkvæmd listrænnar stefnu SÍ
  • Vinnur tillögur að dagskrá hljómsveitarinnar með listrænum stjórnanda og framkvæmdateymi SÍ
  • Listræn ráðgjöf við listrænan stjórnanda, gestalistamenn og framkvæmdateymi
  • Formennska í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar
  • Aðkoma að samningagerð við listafólk
  • Yfirferð á raddskrám tónverka
  • Ritun texta um verkefni hljómsveitarinnar
  • Aðkoma að árlegri starfsáætlun og vinnuáætlun

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Yfirgripsmikil tónlistarþekking með áherslu á sígilda tónlist og samtímatónlist
  • Yfirgripsmikil þekking á starfsemi sinfóníuhljómsveita, hljómsveitarstjórum og einleikurum/einsöngvurum á alþjóðlegum vettvangi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og unun af teymisvinnu
  • Sjálfstæði, drifkraftur og skipulagshæfni í starfi
  • Þekking á starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er kostur

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í yfir 75 ár og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum, en á einnig samstarf við listafólk úr ólíkum greinum tónlistar. Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Starfsmannafjöldi Sinfóníuhljómsveitar Íslands er rúmlega 100 manns. Nánari upplýsingar á sinfonia.is.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Sinfóníuhljómsveit Íslands áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar

Inga S. Arnardóttir – inga@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið - Hlutastarf
Umsóknarfrestur: 24.05.2026

Listrænn ráðgjafi – Sinfóníuhljómsveit Íslands

Höfuðborgarsvæðið - Hlutastarf
Umsóknarfrestur: 24.05.2026