Lyfjaval óskar eftir að ráða lyfjafræðing í stöðu lyfsöluleyfishafa í apótek Lyfjavals á Selfossi. Um er að ræða spennandi og krefjandi starf í ört vaxandi og framsæknu félagi. Leyfishafi heyrir undir framkvæmdastjóra félagsins.
Helstu verkefni
Dagleg stjórnun og rekstur apóteksins
Móta og innleiða rekstrarstefnu apóteksins í samráði við stefnu fyrirtækisins
Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja í samræmi við lög og reglugerðir
Ábyrgð á mönnun og starfsumhverfi í samráð við stefnu fyrirtækisins
Byggja upp sterkt teymi, þjálfa og þróa lykilstarfsfólk
Ábyrgð á þjónustu við viðskiptavini, ásýnd apóteks og heildarupplifun viðskiptavina
Hæfniskröfur
Háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi
Starfsreynsla sem lyfjafræðingur
Þekking og reynsla af störfum í apóteki
Afburðahæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Við bjóðum
Ábyrgðar- og áhrifaríkt stjórnendahlutverk með raunverulegt svigrúm til ákvarðanatöku
Samkeppnishæf kjör og árangurstengd umbun
Stuðning frá reynslumiklu stjórnendateymi
Tækifæri til að þróa rekstur og byggja upp öflugt apótek til framtíðar
Sveigjanlegt og faglegt vinnuumhverfi
Lyfjaval hefur verið brautryðjandi í lyfjasölu á Íslandi og rekur samtals sjö apótek í dag, fimm á höfuðborgarsvæðinu, eitt í Reykjanesbæ og eitt á Selfossi. Þar af eru fimm bílalúguapótek. Lyfjaval er í eigu Drangar hf. og því hluti af sterku og metnaðarfullu umhverfi þar sem áhersla er á að styðja við öflug teymi stjórnenda og frumkvöðla þegar kemur að þróun og uppbyggingu fyrirtækja og viðskiptahugmynda.