Rekstrar- og viðhaldsstjóri – Björgun Sement

Björgun Sement leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með sterkan tæknilegan bakgrunn, leiðtogafærni og víðtæka þekkingu á viðhaldi og framkvæmdum.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í alþjóðlegu umhverfi, samvinna með öflugri liðsheild sem vinnur saman að því markmiði að byggja vistvænni framtíð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með endurbótum, viðgerðum og viðhaldi fasteigna, skipa, bíla, tækja og framleiðslubúnaðar
  • Skipulagning, verkstýring og eftirfylgni framkvæmda- og viðhaldsáætlana
  • Kostnaðareftirlit, greining rekstrar- og viðhaldsgagna, ýmis skýrslugerð og tillögur að umbótum
  • Fagleg og skilvirk samskipti og miðlun upplýsinga til stjórnenda, verktaka, framleiðenda, hönnuða og annarra hagsmunaaðila
  • Tæknilegur stuðningur og þátttaka í innleiðingu nýrra tækni- og gervigreindarlausna
  • Þátttaka í gæða-, öryggis- og mannauðsmálum tengdum framkvæmdum og viðhaldi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun í vél-, iðn-, tæknifræði eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi tölvufærni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Jákvætt viðhorf og mjög góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri

Árið 2025 sameinuðust Björgun og Sementsverksmiðjan undir einu nafni: Björgun-Sement, en rætur fyrirtækjanna ná aftur til ársins 1952. Björgun-Sement framleiðir hágæða steinefni úr námum á sjó og landi og flytur inn sement fyrir íslenskan byggingariðnað. Fyrirtækið sinnir einnig hafnardýpkunum og dælingu á sjávarefnum ásamt því að starfrækja námuvinnslu.

Björgun-Sement hefur verið dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Hornsteins frá árinu 2010 en jafnframt starfrækir Hornsteinn fyrirtækið BM Vallá. Um 200 starfsmenn vinna að verkefnum fyrirtækisins víða um land, þar sem markmiðið er að gera íslenska mannvirkjagerð vistvænni.

Frekari upplýsingar

Þórdís Sif Arnarsdóttir – thordis@hagvangur.is

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 26.05.2026

Rekstrar- og viðhaldsstjóri – Björgun Sement

Höfuðborgarsvæðið
Umsóknarfrestur: 26.05.2026